mánudagur, 12. nóvember 2007

Raggi bloggar

Jæja, ætli maður verði ekki að smella upp s.s. einu stykki bloggi víst maður er nú að fara að leggjast í ferðalög á nýju árin.

Ef þið vissuð það ekki þá er ég sem sagt að hætta formlega störfum hjá Eskli um áramótin. Á þessum árum hefur maður náð að safna þó nokkru magni af gráum hárum og óendanlegu magni af skynsemi.

Til að losa mig við eitt af vandmálum bransans sem er eintóm svartsýni og neikvæðni hef ég ákveðið að hefja ekki störf strax aftur í hugbúnaðarbransanum þegar samning mínum við Eskil líkur heldur hoppa í ferðalag með Dodda félaga mínum.

Við snillingarnir stefnum á að taka góða sirpu á Suður Ameríku og Suðaustur Asíu með viðkomu í nokkrum öðrum löndum. Þetta verður svona fjórðungur úr heimsreisu þar sem við höfum ekki óendanlegan tíma og getum því aðeins verið fram í maí á ferðinni.

Hér verður hægt að finna upplýsingar um ferðaplan, skipulagningu, tengla á hitt og þetta sem við viljum muna eftir og svo vonandi einhverjar ferðasögur og myndir á meðan við erum á ferðalagi. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég er ekki mikill bloggari í mér en það mun koma í ljós hvort að ég hafi nennu í að halda þessu svæði úti :)