fimmtudagur, 8. maí 2008

Ferðalok

Jæja þá er því lokið. Nú er ég búinn að vera á ferðinni í 4 mánuði og ískaldur raunveruleikinn tekinn við. Ég lenti á mánudaginn eftir rúmlega 30 tíma ferðalag. Við lentum í töfum frá Bangkok til London þannig að það flug endaði í 13.5 klst. Þrátt fyrir að hafa fjárfest í svefntöflu þá náði ég nú ekki að sofa mikið í því flugi. Ég var því illa þreyttur og ruglaður þegar ég lenti. Daginn eftir var maður kominn fram úr kl. 7 eldhress en síðustu 2 dagar hafa eitthvað verið erfiðir. Maður er þó búinn að haugast í ræktina og reyna að snúa sér úr þessar +7 tímaskekkju sem ég er búinn að vera í síðustu 2 mánuði.

Dvöl mín í Víetnam var fín þó að þetta væri ekki nema rétt rúmlega 4 daga stopp. Ég lenti í Saigon og ákvað að vera ekki að reyna að ferðast neitt annað þar sem ég þurfti að komast í flugið heim þann 4. maí. Saigon er fín, samt óþarfi að vera þar lengur en ca. 3 daga og líklega best að enda ferð síðan um víetnam þar. Flestir mæla með því að fara til Hanoi fyrst og halda svo suður á leið og enda í Saigon.

Saigon er risastór borg, 9 milljón manns búa í henni og hvorki meira né minna en tæplega 4 milljónir mótorhjóla og skellinaðra á svæðinu. Umferðin er all svakaleg og fátt annað að gera en treysta á Guð og lukkuna þegar maður fer yfir götuna því ekki mun neinn stoppa fyrir manni :). Æfingin í Tælandi kom að góðum notum. Með góðu samstarfi gangandi vegfaranda og ökumanna kemst maður einhvern veginn yfir göturnar ef maður labbar hægt og rólega þannig að mótorhjólin nái að sveigja fram hjá manni :).

Ég gerði s.s. ekki margt, fór og skoðaði stríðsmynjasafnið þarna sem geymir myndir og frásagnir af Víetnamstríðinu. Áhugavert að sjá myndir og lýsingar frá sjónarhorni annara en Hollywoodframleiðenda. Hryllilegar myndir af almennum borgurum sem voru fórnarlömb napals, orange sprengja og svo 70 milljón lítra af dixoin eitri sem Kaninn úðaði yfir svæðin til að drepa allar plöntur sem byrgðu þeim sín í baráttu sinni við VC liða. Í þessu blessaða stríðsmynjasafni rakst ég náttúrulega á 3 Íslendinga. Þá er þetta 5 skiptið á 4 mánuðum sem ég rekst á Íslendinga. Nokkuð magnað!

Ég fór líka í dagsferð að skoða hluta af gangnakerfinu sem VC notaði til að berjast við Kanann. Þetta gangnakerfi er víst um 200km langt, á 3 hæðum og tók yfir 20 ár að grafa þau út með handaflinu einu. Göngin eru um 130cm á hæð og 50-60cm á breidd og því ekki mikið pláss fyrir fullvaxinn mann eins og mig inni í þeim. Þessir 100m sem ég fór tóku alveg þokkalega á alla vega þannig að ég skil að kaninn hafi átt erfitt með að gera eitthvað af viti í fullum herklæðum þarna.

Jæja þá er maður kominn heim. Verðlagið er náttúrulega rugl hérna. Mér sýnist allt hafa hækkað um alla vega 20% síðan ég fór. Einn skitinn hádegismatur kostar jafn mikið og fara út að eta 3 á dag í 2 daga í Víetnam þannig að það mun taka sálina á mér smá tíma að jafna sig á þessu. Það hjálpar ekki að vera tekjulaus á þessu skeri :). Ef þið eruð með verktakavinnu fyrir mig eða vijlið bara senda mér nokkrar kúlur þá er um að gera að hringja eða senda línu :).

Framundan er að reyna að byrja að hreyfa sig aftur, losa sig við smá mör og komast í nægjanlegt form til að geta hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu. Ég og Addi ætlum að reyna að komast heilt maraþon í haust þannig að æfingar þurfa að hefjast sem fyrst :). Svo er það bara full time skólastrákur í haust. Ég er skráður í dagskólann í HR haust og vorönn þar sem ég mun klára þessa blessuðu BS gráðu loksins. Kominn tími á að reyna að endurverkja eitthvað af þessum heilasellum :).

Það er aldrei að vita nema að maður reyni að blogga eitthvað hérna í sumar, reyni alla vega að halda úti einhverju fitnessbloggi svona sem einhverju aðhaldi þannig að það sé alla vega opinbert ef ég er að svíkjast undan. Svo er aldrei að vita nema eitthvað merkilegt gerist í lífi mans. Maður veit aldrei :).

Að lokum vill ég biðjast innilegrar afsökunar á hrottalegri stafsetningu og illri meðferð minni á íslenskri tungu á þessu bloggi. Ég hef oftast bara puðrar þessum færslum út og ekki nennt að lesa það nægjanlega vel yfir. Einnig hafa 10 ár í hugbúnaðarbransanum ollið því að ég skrifa hálfgerða Ísl-Ensku á MSN og tölvupóst formi þannig að ég mun líklega seint ná langt sem rithöfundur :).

Latör........