Loksins loksins, það tókst. Eftir miklar pælingar, smá haugshátt og ótal símtöl við hana Dee hjá British Airways tókst loksins að panta miðann fyrir "heimsreisuna". Ég leyfi mér að setja heimsreisu í gæsalappir þar sem við heimsækjum ekki Ástralíu, Afríku né Evrópu (Já Doddi ég veit að við millilendum í Evrópu) í ferðinni. Þetta er í raun hálf heimsreisa :).
Eftir að hafa skoðað hina ýmsu kosti ákváðum við að skella okkur á heimsálfumiða hjá http://www.oneworld.com/. Onworld er samstarf fjölda aðila sem miðar að því að koma ferðlöngum sem stefna á heimsreisur eða lengri ferðalög á milli á bæði ódýran og sveigjanlegan hátt. Inn á vefnum hjá þeim má finna snilldar flashskjal sem gerir manni mögulegt að skoða hvert og hvaðan er hægt að fljúga með flugfélögunum sem taka þátt í þessu samstarfi. Mikil gleði það!
Við enduðum með því að kaupa oneworld explorer miðann. Keyptum fjórar heimsálfur og 4 aukaflug (max 4 flug per heimsálfu inni í fastagjaldinu svo hægt að kaupa max 2 flug í viðbót per heimsálfu). Kostaði miðinn á endanum 2.048 pund með sköttum. Ekki mikið miðað við þá staðreynd að þetta eru hvorki meira né minna en 17 flug. Ég vill reyndar hugsa sem minnst um allar þær stundir sem við Doddi eigum eftir að eyða saman í flugvél. Verðið er þó gott það veit ég :).
Ég vill þakka Ragga Á sem þurfti að leyfa okkur að nota kreditkortið sitt þar sem British Airways (við enduðum með að kaupa miðann í gegnum þá) vildi ekki taka við borgun í gegnum síma nema að við værum UK kreditkort og korthafi fengi miðana senda. Sem betur fer þá var hægt að plata Ragga til að misnota kortið sitt eftir að við höfðum millifært aur inn á hann svo hann gæti samt keypt jólagjafir handa fjölskyldunni :).
þriðjudagur, 18. desember 2007
fimmtudagur, 6. desember 2007
Starfslok
Jæja þá er því lokið. Tæp 8 ár frá stofnun Eskils og kominn tími á að snúa sér að öðru. Starfi mínu hjá Eskli (og þar með D3 þar sem ég hef verið verktaki síðasta 1,5 ár) lauk formlega í dag.
Kallinn fór í kveðjuleiðangur upp í Eskil að kasta kveðju á gömlu félagana í Eskli. Eitthvað var lítið um mannskap á svæðinu þannig að ef þeir lesa þetta þá þakka ég þeim hér með gott samstarf og vona að framtíðin beri fleiri sigra í skauti sér fyrir okkur alla. Það verður áhugavert að sjá hvað verður um Eskil árið 2008, en fyrir þá sem ekki vita þá voru Eskill og Innn sameinuð nú í haust og í raun og veru er restin af fyritækinu að stærstum hluta starfsmenn Innn.
Nóvember var reyndar frekar mikill leti mánuður hjá mér þ.s. ég hef verið að reyna að vinna á sumarfrísdögunum sem ég átti uppsafnaða. Ég og Helgi Már skelltum okkur til Baltimore þ.s. við gerðum okkur glaðan dag og "græddum" helling af peningum í formi verslunar :). Við héldum að við hefðum sigrað verslunarlega séð, og þá sérstaklega Helgi sem var með allt sem nokkrum manni getur vantað í útivist og ca. eitt kvikmyndaver með í för. Við komumst að því að við höfðum rangt fyrir okkur þegar við komum út á flugvöll. Kellingarnar voru með ca. 2 ískápa af drasli og ég skil ekki hvernig það er hægt að koma svona miklum farangri í gegn án þess að borga hundruði þúsunda í yfirvigt.
Haldið var austur á land til að stunda lyngvargsveiðar (rjúpnaveiði). Skemmst er frá því að segja að lítill snjór var á svæðinu og því var lítið að hafa í kjarrinu þar sem við höfðum veiðileyfi. Rjúpann vann í þetta skipti, 9 manns með undir 30 rjúpum og það er mjög líklegt að þær rjúpur séu með þeim dýrari sem hafa verið veiddar (meðalkostnaður á rjúpu ca. 8.000 ). Ferðin var þó þessi fínasta skemmtun enda er veiðihúsið við Breiðdalsá algjör höll og menn nutu þess bara að horfa á uppstoppuðu rjúpuna í koníakstofunni, slaka á í gufunni, eta og drekka :).
Í lok nóv. skelltum við Björg okkur til Tenerife að upplifa hita og sól þ.s. þetta svartnætti var að gera mann geðveikann. 24 stiga hiti og passlega mikil sól gerði þessa viku hina bestu afslöppun. Át reyndar yfir mig en það er s.s. bara fínt að æfa sig í því fyrir jólin :).
Brottför er áætluðu 8-9 janúar frá Íslandi. Fram að þeim tíma mun ég vera að dúlla mér við að klára að undirbúa heimsreisuna með Dodda kallinum sem er staddur í Indlandi að eta karrý og vinna. Einnig verður maður eitthvað að bleyta heilan um það hvað skal gjöra þegar maður kemur aftur á ísinn í maí byrjun.
Sendi meira info um fyrirkomulag ferðar fljótlega.
p.s. Ef þið þurfið að senda á mig póst sendið þá á ragnar.gunnlaugsson(hjá)gmail.com ég mun ekki lesa @d3.is né @eskill.is póstana.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)