þriðjudagur, 18. desember 2007

Miðinn greiddur

Loksins loksins, það tókst. Eftir miklar pælingar, smá haugshátt og ótal símtöl við hana Dee hjá British Airways tókst loksins að panta miðann fyrir "heimsreisuna". Ég leyfi mér að setja heimsreisu í gæsalappir þar sem við heimsækjum ekki Ástralíu, Afríku né Evrópu (Já Doddi ég veit að við millilendum í Evrópu) í ferðinni. Þetta er í raun hálf heimsreisa :).

Eftir að hafa skoðað hina ýmsu kosti ákváðum við að skella okkur á heimsálfumiða hjá http://www.oneworld.com/. Onworld er samstarf fjölda aðila sem miðar að því að koma ferðlöngum sem stefna á heimsreisur eða lengri ferðalög á milli á bæði ódýran og sveigjanlegan hátt. Inn á vefnum hjá þeim má finna snilldar flashskjal sem gerir manni mögulegt að skoða hvert og hvaðan er hægt að fljúga með flugfélögunum sem taka þátt í þessu samstarfi. Mikil gleði það!

Við enduðum með því að kaupa oneworld explorer miðann. Keyptum fjórar heimsálfur og 4 aukaflug (max 4 flug per heimsálfu inni í fastagjaldinu svo hægt að kaupa max 2 flug í viðbót per heimsálfu). Kostaði miðinn á endanum 2.048 pund með sköttum. Ekki mikið miðað við þá staðreynd að þetta eru hvorki meira né minna en 17 flug. Ég vill reyndar hugsa sem minnst um allar þær stundir sem við Doddi eigum eftir að eyða saman í flugvél. Verðið er þó gott það veit ég :).

Ég vill þakka Ragga Á sem þurfti að leyfa okkur að nota kreditkortið sitt þar sem British Airways (við enduðum með að kaupa miðann í gegnum þá) vildi ekki taka við borgun í gegnum síma nema að við værum UK kreditkort og korthafi fengi miðana senda. Sem betur fer þá var hægt að plata Ragga til að misnota kortið sitt eftir að við höfðum millifært aur inn á hann svo hann gæti samt keypt jólagjafir handa fjölskyldunni :).

1 ummæli:

Das Auto sagði...

Við munum fylgjast spenntir með ferðinni héðan frá bækistöðvum D3 og síðar IM :)