Ship og hojj, jæja þá erum við snillingarnir búnir að vera á sjó í 8 daga. Eftir að hafa verið að labba um fjöll Perú var haldið til Galapagos eyja með smá stoppi í Quito Equador. Quito var ágæt en s.s. ekki margt að gera þar. Við gistum í hluta borgarinnar sem kallast "New City", þetta er svona typical stórborg, skítug og menguð með veitingastöðum, börum og kaffihúsum út um allt þannig að það er þægilegt að gista í þessum parti borgarinnar. "Old City" parturinn hafði meiri borgarmynd með gömlum húsum, kirkjum og skemmtilegum torgum þannig að ef maður vill rölta um Quito og skoða mannlífið, söfn og kirkjur þá er "Old City" málið.
Jæja þá eru það Galapagos eyjarnar. Eins og ég sagði þá erum við búnir að gista í báti í 8 daga. Keyptum ferðina fyrir löngu og bókuðum ferð með hinni miklu snekkju "Rumba". Ákveðið var að fara á economy class þ.s. það munaði slatta á því og Tourist Superior sem var næsti klassi fyrir ofan. Það kom fljótlega í ljós hvað Economy þýðir og af hverju það er ódýrara. Báturinn var slatta minni en margir af hinum bátunum sem skipti ekki öllu máli. Leiðsögumaðurinn, Ceres, er líklega sá elsti í bransanum, tæplega 70 ára gamall, húðinn dökkbrún og slitinn eins og gamalt chesterfield sófasett. Kallinn liðast hægt og rólega áfram, með spaugilegt bros á vör og ekki leiddist honum að fá sér einn og einn bjór inn á milli. Mjög fyndinn kall!
Kallinn tók á móti á okkur á flugvellinum á Galapagos sem er ca. verst útbúni og skipulagði flugvöllur sem ég hef lent á. Þegar við komumst loksins í bátinn til að skipta um föt þá var ég orðinn vel blautur af svita enda var rúmlega 30 stiga hiti og sól og mikill raki og ég klæddur í gallabuxur og stuttermabol. Þegar við komum um borðinn fengum við varúaðarorð út af sólinni á miðbaugnum. Sá gamli sagði "you know, I was once white like you! The sun here is very strong! I use sun protection number 50 and look at me". Ég hafði einmitt verið að hugsa um það þegar ég sá kallinn að það væri ekki vitlaust hjá honum að fara að nota sólarvörn enda húðin helvíti dökk og uppþornuð. Eftir þessi varnarorð þá var dreginn fram öll sólarvörn sem fannst og henni makað reglulega á enda slapp maður algjörlega við bruna, reyndar það vel að maður er enn þá hálf hvítur enda líklega nokkra vikna verk að skipta út hvíta litnum á löppunum.
Þesar ferðir virkar annars þannig að maður gistir í bátnum allan tímann. Þannig er hægt að nýta næturnar til að ferðast svo hægt sé að skoða sem mest á daginn. Við fórum á land ca. 2-3 á dag til að skoða mismunandi eyjur og dýra- og plöntulífið á þeim. Þetta er eins og vera að horfa á Animal Planet í 8 daga. Endalaust magn af dýrum sem eru ótrúlega spök og lítið mál að komast mjög nálægt þeim. Þrátt fyrir þá staðreynd að um 200.000 ferðamenn heimsæki Galapagos ár hvert þá virðast þau ekki vera farinn að hræðast mannskepnuna enda er reynt að sjá til þess að þau fái frið og enginn snerti þau.
Eftir 8 daga er maður búinn að sjá meira en nóg af sæljónum, sjávareðlum, landeðlum, hrauneðlum, pelikönum, kröbbum, loðselum, sæskjaldbökum, landskjaldbökum, blue footed boobies, frigel birds og önnur kvikindi sem er of langt mál að þilja upp hér.
Það er ekki aðeins í boði að rölta um eyjarnar og skoða dýrin á landi. Einnig er hægt að fá að snorkla og á sumum skipum er hægt að fá að kafa (þó ekki okkar). Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki mikill áhugamaður um vatn né sund enda arfa slakur sundmaður. Það var hins vegar ekki hægt að sleppa því að snorkla þarna og því mannaði ég mig upp í það að skella mér í sjóinn á fyrsta degi og stíga mín fyrstu spor sem snorklari :). Eftir smá stund var maður búinn að losna við mesta óöryggið og næstu daga snorklaði maður þegar það var í boði. Það var alveg frábært enda sjórinn mjög tær og sjávarlífið ansi fjölbreytt. Þetta var eins og að synda í risastóru fiskabúri. Ég er búinn að sjá fiska í öllum regnbogans litum auk þess sem ég synti með sækjaldbökum, sæljónum og sjávareðlum. Þá erum við einnig búin að sjá sjá "sting rays" og hákarla svo eitthvað sé nefnt.
Þrátt fyrir að báturinn hafi ekki verið mikil lúxussnekkja þá var þetta frábær ferð. Gott að slaka aðeins á eftir mikið ferðalag, lítinn svefn og slatta áreynslu í Perú. Eftir að maður var búinn að mastera "handsnúna" klósettið (maður þurfti sem sagt að dæla draslinu út úr klósettinu sjálfur :)) og venjast því að sofa í herbergi sem ca. 4 rúmmetrar þá var þetta bara eðal. Veðrið gott, maturinn góður (þó að kokkurinn hafði ca. 2 rúmmetra í vinnuaðstöðu) og félagskapurinn góður. Fyrri part ferðar vorum við reyndar með 4 pörum þannig að við Doddi vorum orðnir 5 parið :). Seinni part ferðarinn var skipt um farþegar og þá komu 4 einstaklingar og eitt par þannig að þetta var orðið eðlilegra ástand fyrir okkur snillingana:).
Við vorum að lenda í Quito í dag, áttum reyndar að gista eina nótt hér í Quito áður en við færum til Argentínu. Við náðum hins vegar að flýta fluginu um einn dag þannig að við verðum komnir til Argentínu á eftir ca. 10 tíma. Það verður gott að komast aftur í borg. Þó að þessi ferð hafi verið frábært þá er hægt að slaka of mikið á. Í þessa 8 daga sem við erum búnir að vera á Galapagos þá erum við búnir að borða þrisvar á dag, taka siestu einu sinni á dag og svo höfum við venjulega verið komnir í rekkju um 21:00 þar sem báturinn er þá venjulega farinn að sigla og því fátt annað að gera enn að liggja og sofna við ruggið.
Jæja ég ætla að henda inn myndum á morgun þegar við erum komnir til Argentínu. Sendi inn aðra færslu þegar þær eru komnar inn.
kv,
Ragnar
mánudagur, 28. janúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ snillingar úti í hinum stóra heimi, gaman að heira af ykkar nýustu reynslu"5 parið".
Svaka gaman að lesa bloggið og það er svo skemmtilega skrifað. Frúin í Kína fylgist einnig með og dáist að ykkur.
Kveðja
Magga systir
Gaman að fylgjast með ykkur. Meira ruglið að vera ekki með ykkur.
kveðja
Gunni Stefáns.
Skrifa ummæli