Jæja þetta hafðist eftir 37 tíma ferðalag á 72 tímum (á leið til og frá flugvelli og í flugvél). Komumst við loksins til Cuzco í Perú. Það var mikil gleði að komast loksins á leiðarenda og hugsa til þess að við þurfum ekki að fara í neitt flug næstu 7 daga.
Við gistum eina nótt í Lima á leið okkar hingað til Cuzco. Sáum ekki mikið af borginni þar sem við lentum frekar seint eftir mjög langt flug og þurftum að fara í næsta flug kl 13 daginn eftir. Það sem við sáum var þó í samræmi við það sem maður hafði lesið og ekki mikill tilgangur með því að stoppa lengi í Lima. Borgin er stór og hrörleg og ber merki samkrulls "Ameríkuvæðingar" og svo almennrar fátæktar. Hús og bílafloti bera þess merki að það sem er til er notað og þá meina ég notað :).
Bílaflotinn í Peru og þá sértstaklega í Lima er mjög skrautlegur. Stór partur af bílunum er mjög gamall 20-30 ára bílar er ekkert óalgengt miðað við það sem við sáum. Gríðarlegt magn af gömlu góðu Volkswagen bjöllunni góðu eru enn í gangi þarna og eflaust margir sem geta rekist á fyrsta bílinn sinn þarna enn í góðum gír :). Rútu og strætóflotinn. Á þessum 2 tímum sem við vorum úti á götu þá sáum við tvisvar farþega í stútfullri rútu vera að ýta henni til að reyna að láta hana hrökkva í gang. Mjög fyndin sjón og í rauna magnað að sjá 1-2 einstaklinga vera að ýta heilli rútu :).
Ég mæli sérstaklega með því að fara í leigubíl í Lima. Bílstjórarnir eru á eldgömlum dælduðum bílum og virða engin umferðalög. Það er bara vaðið áfram á móti umferð eða meðfram henni og þeir sem eiga bíla sem eru þokkalega nýlegir virðast vera búnir að læra að víkja fyrir þeim :). Flautan er notuð óspart og nærliggjandi bílstjórar blóta óspart. Ferð okkar upp á flugvöll var vægast sagt spennandi :).
Enn á ný sannast að Ísland er stærsta smáþjóð í heimi. Það skiptir ekki máli hvar í heiminum maður er maður rekst á Íslendinga. Við komum hér á hostelið okkar, Casa de la Gringa, og bókum okkur inn. Sé ég þá ekki nafn í bókunarlistanum sem lítur út fyrir að vera íslenskt. 10 mínútum síðar þegar við sitjum og drekkum coca te og reynum að fá smá súrefni í kroppinn ganga fram hjá okkur tvær stelpur og önnur þeirra í KSÍ treyju. Hlaut að vera að í Cuzco í Perú, 10 þúsund kílómetrum frá íslandi í bæ þar sem eru tugir hostela að við myndum rekast á Íslendinga :).
Annars kom mér nokkuð á óvart hvað þunna loftið hafði mikil áhrif á mig. Cuzco er í 3300 metra hæð og eftir 1-2 tíma var maður alveg farinn að finna fyrir því. Brekkur voru orðnar mjög erfiðar í göngu og hjartað virtist vera farið að hafa aðeins meira fyrir hlutanum. Ég var líka farinn að ná að segja og skrifa aðra hluti þó það hafi ekki verið alvarlegt en það var nokkuð fyndið að upplifa þennan slappleika. Eftir rólegan dag í gær, slatta vatnsdrykkju (og klósettferðir) og góðan svefn í nótt þá er maður orðinn nokkuð góður þó að maður finni alveg að langhlaup séu ekki í boði þessa stundina.
Jæja hættur núna svo að einhver annar komist í tölvuna hér á hostelinu. Meira seinna.
laugardagur, 12. janúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Meiriháttar spennandi byrjun hjá ykkur og haltu svo áfram að vera duglegur að skrifa (kíki i Atlas og fylgist með ykkur)
Kv. Magga
Sæll kappi,
Hlakka til að lesa meira frá ferð þinni. Rosalegt með þessa íslendinga, já þeir eru út um ALLT.
kv,
Betti
Var að googla inka+peru og fékk þessa mynd upp
http://www.peturogberglind-peru.blog.is/album/Peru/image/145855/
ég er náttúrulega ekkert öfundsjúk :)þetta er bara beauty
k&k,
Björg
Ég er enn að venjast því að Raggi sé að blogga..
Haha tryllt þetta hljómar eins og að fara í leigubíla á kúbu.. trylltu gaurarnir þar voru reyndar ekki allir með flautur í bílunum þar :)
öfund í drasl..
later.. Hulda litla syss
Skrifa ummæli