mánudagur, 18. febrúar 2008

Rio og Santiago

Smá update ur sólinni. Við yfirgáfum Rio eftir 3 daga í þessari frægustu borg Suður Ameríku. Mættir þokkalega snemma upp á flugvöll til að missa nú ekki af vélinni. Eftir að hafa verið klukkutíma í röð til að checka sig inn var maður ekkert sérstaklega ferskur að frétta að flugið hefði tafist um 5 tíma :(. Ekkert að gera við því annað en að hanga á flugvellinum og éta flugvallarmat og lesa tímarit. Fátt skemmtilegra en að vera 7 klukkustundir á flugvelli. Annars var flugið til Chile ekki nema rétt rúmir 3 tímar þannig að við vorum komnir til Santiago um 6 um morguninn og tilbúnir að taka túristann á þetta eftir 6 tíma svefn.

Annars var Rio mjög nice. Hitinn og rakinn var reyndar helvíti mikill. Rúmlega 30 gráður á daginn og svo fór hitinn kannski niður í 26 gráður á kvöldinn en rakinn var gríðarlegur. Það voru ófáir lítrar af svita af svita sem láku af manni á þessum 3 dögum þarna. Hitinn og rakinn hér í Chile er mun þægilegri. Um 30 stig á daginn og ekki svo rakt og svo dettur hitinn niður í 15-18 gráður á kvöldin þannig að maður getur farið í gallabuxur og skó á kvöldin sem er mjög nice að geta gert án þess að þurfa hafa áhyggjur af vökvaskorti.

Daginn áður en við Doddi fórum til Chile smelltum við okkur í svona skipulagða dagsferð um Rio. Við vorum sóttir af algjörum nagla á Hostelið. Sá hafði búið í New York í 8 ára og var bæði með hreiminn og taktana þess til sönnunar. Það var byrjað á því að taka 30 mín. hike upp á einhverja hæð þarna inni í borginni. Af henni er gott útsýni yfir suðursvæði Rio þannig að maður sá vel yfir strendurnar og hvernig þær liggja. Fyrir þá sem halda að Copacabana sé málið í Rio þá er það þannig að Copacabana er þekktust en Ipanema og Leblon þykja vera bestu hverfin og bestu strandirnar. Annars eru þessar strendur s.s. allar eins, hiti sól og fólk að maka á sig sólarolíu ásamt uppáþrengjandi sölumönnum.

Eftir að kallinn var búinn að útskýra hvernig Rio City liggur og við búin að sóla okkur aðeins til að þurrka svitann sem varð til á leiðinni upp var haldið í hann og keyrt að Jesússtyttunni góðu. Á leiðinni var leiðsögumaðurinn á fullu að útskýringa hvernig ríkir og fátækir búa saman í borginni og hvernig Favelurnar (fátækrahverfin) liggja upp við hverfi ríka fólksins. Í raun er þetta nokkuð magnað þar sem venjulega liggja fátækrahverfinn í útjaðri borga en hér er þetta þannig að við getum haft eina götu sem er full af rándýrum húsum og svo liggur kannski eitt stykki fátækrahverfi með 100.000 þúsund manns 50 metra frá.

Jesússtyttan var flott. Nú erum við þá búnir að sjá 2 af 7 undrum veraldar. Einhverra hluta vegna var ákveðið að gera þessu styttu að einu 7 undrum veraldar. 38 m. há og nokkuð glæsileg. Samt eiginlega ekki hægt að taka myndir þarna fyrir fjölda túrista á svæðinu. Næst var haldið í hverfi sem heitir Santa Teresa sem er eitt elsta hverfið í Rio. Þar fórum við og átum Fijonas (eða eitthvað) sem er traditional baunaréttur Brazilíumanna. Nýrnabaunir, hrísgrjón, svínakjöt og svínapura hökkuð og í stykkjum sem er dreift yfir herlegheitin. Þessi máltíð sá til þess að maður þurfti ekki að eta næstu 24 tíma :). Það var keyrt meira um borgina og við fengum útskýringar á mismunadi hverfum Rio. Komnir heim seinnipartinn til að taka smá siestu á þetta.

Um kvöldið fórum við svo í bæjarleiðangur með Ástrala, Íra og Sænsku pari sem bjuggu öll á hostelinu. Írinn dró okkur á einhvern Salastað í Lapa hverfinu. Gaurinn var svo nette praktískur að hann vildi taka subwayið þangað. Við röltum eftir honum í sakleysi okkar. Eftir 20 mín og mikinn svita komum við að Subwaystöðinni. Við tók loftkæld lestin og mjög snyrtileg lestarstöð sem kom mjög á óvart. Loftkælingin var vel þeginn enda var maður búinn að svitna all hrikalega á þessu 20 mín. labbi íklæddur gallabuxum sem voru ekki að gera sig í þessum hita :). Eftir að við vorum kominn upp úr lestinni tóku við aðrar 20 mín. í labbi. Þakka fyrir að hafa ekki verið Sænska stelpann því hún var í háhæluðum skóm og stéttirnar þarna er með svona litlum steinum sem henta ekki fyrir konur í háum hælum.

Við komumst þó loks inn á staðinn. Hann var nú ekki beint pakkaður þ.s. hann var mjög stór og á 3 hæðum. Það var hljómsveit á svæðinu sem spilaði funheita Salsamúsík og fólkið fór á kostum á dansgólfinu. Við skelltum okkur á barinn og ákváðum að prófa þennan drykk sem er traditional hér og kallast capriani. Eftir að hafa drukkið einn drykk og fundist vera heldur mikið áfengisbragð af honum fór ég og fylgdist betur með barþjóninum í næsta skipti. Drykkurinn er einfaldur. Nokkri Lime bitar, matskeið af sykri, klakar og svo bara fylla upp með rommi. Af hverju að vera að setja bland eins og í Mojito þegar það er hægt að setja meira áfengi í glasið með því að sleppa því. Stórhættulegur drykkur en nokkuð bragðgóður og nauðsynlegt að vera meðvitaður um að þetta sé bara áfengi. Kvöldið var annars skemmtilegt og við enduðum það með poppáti fyrir utan skemmtistaðinn og svo tekinn taxi heim á hostelið.

Annars hafði ástralinn einmitt átt að vera í svona favelutúr um daginn. Það er nefnilega hægt að kaupa ferðir inn í fátækrahverfin með leiðsögumanni. Samkvæmt túristabæklingum er ekki talið skynsamlegt að fara einn inn í svona hverfi. Reyndar vildi leiðsögumaðurinn okkar meina að svo lengi sem að þú væri ekki lögga þá ættir þú að vera nokkuð öruggur inni í svona hverfi þar sem að þar réðu glæpagenginn öllu og "Gringos" væru off limit. Hvort að það er svo satt veit ég ekki. Þetta með löggurnar sannaðist þó um daginn þar sem 2 löggur létust í stærstu favelunni þennan sama dag og því var ferð Ástalans frestað fram á næsta dag :). Ég hafði einmitt heyrt hljóð sem virtust vera byssuhvellir fyrr um daginn þegar við vorum uppi á hæðinni góðu sem við röltum upp á með leiðsögumanninum. Það virtist vera frekar stíf skothríð þannig að ég hélt að þetta hlyti að vera rugl í mér. Það kom svo á daginn að þetta var rétt.

Alla vega þá erum við búnir að vera í Santiago í 2 daga, fljúgum héðan í dag til LA. Santiago er bara mjög flott borg og kemur mjög á óvart að hún virðist bara vera mjög hrein og vel skipulögð. Hreinar og breiðar götur, flottir garðar. Styttur af mönnum á hestum eins og alls staðar í SA. Eitt stykki upplýstur Jesú upp á hæð eins og í öllum löndum í SA o.s.frv. :). Mikil gleði allt saman. Maður á eflaust eftir að koma aftur við í framtíðinni í SA og taka meiri útivistarpakka í bæði Chile og Argentínu.

Nú er komið að því að við yfirgefum SA og höldum til Asíu með stuttu stoppi í LA og svo Hawai í viku þar sem við stefnum á að vinna aðeins í Taninu!!!

More on that later....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ótrúlega gaman að lesa yfir þetta ævintýri ykkar! Góða skemmtun áfram.
Hadda

Nafnlaus sagði...

á ekki bara að skuttla smá töktum í mjaðmagrindina og og hita upp fyrir Haway.

Góða skemmtun
Magga systir