laugardagur, 23. febrúar 2008

Á slóðum Óskarsins

Á slóðum Óskarsins

Þá er dvöl okkar drengja í L.A. lokið og ég verð að segja að ég syrgi það ekki. Ég hef reyndar komið áður til LA þannig að ég gerði ekki miklar væntingar til borgarinnar. Hér er fátt fyrir ferðamann að sækja sem hann getur ekki fundið alls staðar annars staðar í heiminum nema að hann sé gríðarlegur áhugamaður um kvikmyndir þá er rölt um Hollywood Boulaward og bíltúr um hverfi Hollywood stjarnanna eitthvað sem menn gætu haft ánægju af. Bílaleigubíll er hins vegar nauðsynlegur hérna því að vegalengdir eru miklar og leigubílakostnaður fljótur að hrannast upp (ræðum ekki um hver hann var hjá okkur :)).

Hér erum við búnir að vera að takast á við vetrahörkur LA búa. Íklæddir flíspeysum, gallabuxum og lokuðum skóm höfum við arkað um stræti LA að drepast úr kulda. Við höfum þurft að þola allt niður í 10 gráðu hita og rigningu inn á milli. Það er nauðsynlegt að lenda í svona heimskautaveðri til að læra að meta þessar 30 gráður sem við höfum þurft að þola hingað til :).

Þar sem USA var eina leið okkar til að fara frá Suður Ameríku var ákveðið að taka þetta 4 daga stop hér í LA og skella okkur svo í rómantíska ferð til Hawai :). Við erum búnir að ná okkar markmiðum hér í LA sem voru einföld. Senda hluta af farangri sem ekki er þörf á lengur heim, skerða hár okkar og fjárfesta í raftækjum sem er nauðsynlegt að gera þegar maður er staðsettur í Bandaríkjunum og ein af fáum ástæðum sem fólk ætti að gera sér ferð hingað.

Við komu okkar á hið stórglæsilega Liberty Hótel tók við mér pakki sem ég hafði pantað á Amazon. Garmin 305 púlsmælir með innbyggðu GPS tæki. Stórskemmtilegt tæki sem er "nauðsynlegt" fyrir alla karlmenn sem eiga strigaskó að eiga :). Linksys iPhone, Skype sími með innbyggðri WiFi tengingu var einnig keyptur svo hægt væri að vera í talsambandi við gamla góða Frónið. Símasamband hefur verið mjög brösult hjá okkur í SA þannig að það var ákveðið að fjárfesta í þessari græju. Ef einhver vill ná í mig þá er bara að adda ragnar.gunnaugsson inni á Skype og svo bara að bjalla þegar ég er online (þá er ég sem sagt með kveikt á símanum og inni á þráðlausu neti).

Við vorum ekki hættir, strigaskór voru keyptir þ.s. ég er að fara yfirum af hreyfingarleysi og svo smellti maður sér á eitt stykki fartölvu á heila $500 (14" skjár, 160GB drif, DVD brennari. Reyndar drasl batterí en...) sem ég er einmitt að nota núna til að blogga á meðan við erum að bíða eftir flugvélinni til Hawai. Tölvubúnaður Hostela og internetkaffihúsa hefur verið mjög misjafn og því ákveðið að fjárfesta í þessum grip til að hafa aðgengi að "öruggri" tölvu sem tekur ekki 10 mín að framkvæma einföldustu aðgerðir á. Hingað til erum við búnir að fara í 18 flug og eyða fleiri klukkustundum á leið til og frá flugvöllum og inni í flugvél en ég vill hugsa um. Því er mjög ljúft að geta eytt tímanum í að blogga, flokka myndir og annað á meðan maður hangir á flugvellinum.

Doddinn lét heldur ekki sitt eftir liggja. Hann brotnaði loksins og keypti sér Canon 40D myndavél (pro stuff fyrir þá sem ekki vita) og "ultra digital sterió" linsu með stabilizer svo hann geti nú náð að festa alla fegurðina á filmu sem er framundan. Þetta eru miklar gleðifréttir þar sem hann er nú búinn að vera að hugsa um þetta frá upphafi ferðar hve æðislegt væri að eiga svona vél. Nú liggur hann uppi í rúmi á kvöldin og strýkur elskunni og nuddar á henni takanna. Ef ég væri ekki með labbann, símann og GPS tækið mitt til að gæla við þá væri ég eflaust afbrýðisamur :).

Annars er þetta hótel okkar crap enda ódýrt. Staðsetningin er þó frábær, 50m frá Kodiak Theater á Hollywood Boulavard sem er miðpunkturinn á þessu fræga stjörnulagða stræti. Óskarsverðlaunaafhendinginn verður einmitt haldinn í þessu bíói næstkomandi sunnudag og hefur undirbúningur staðið yfir frá því að við mættum á svæðið og var rauði dregillinn, áherfandapallar og annað komið upp þegar við fórum í dag. Leiðinlegt fyrir Doddann að við þurfum fara áður en stjörnunar mæta á svæðið en ég græt það s.s. ekki enda lítill áhugamaður um Hollywood stjörnur.

Við gerðumst svo frægir að fara og eta á Hooters stað sem var á H.B. Ekkert meira viðeigandi en að mæta á Hooters í þeirri borg þ.s. það telst til undantekningar ef kona er ekki með sílikon í brjóstunum :). Þetta eru illa kjánalegir staðir en nauðsynlegt fyrir allar manneskjur að heimsækja alla vega einn svona einhvern tímann um ævina. Mæli frekar með Fridays og Rubys ef þið viljið góðann mat þó :). Annars fórum við líka á iHop á morgnanna, Internation House of Pancakes :), og úðuðum í okkur eggjum, beikoni og pönnukökum á Ameríska vísu. Þessi búlla er opinn 24 tíma á sólarhring ef maður lendir í alvarlegum kólesteról skorti og vill moka svo sem einum stakk af pönnukökum í ranann á sér. Aðeins í Ameríku :).

Hawai er næst á dagskránni. Við verðum þar í 7 daga og höldum svo til Tokyo í 5 daga, Indlands í 2 vikur og svo Kína í 10 daga. Það var einmitt farið í Borders og náð sér í fróðleik um þá staði sem við ætlum að heimsækja næsta mánuðinn. Það er ekki vitað nákvæmlega hvað við ætlum að gera á Hawai fyrir utan að skoða Pearl Harbor, pálmatré, drekka Pina Colada og liggja á ströndinni og "tana" okkur. Við erum báðir tilbúnir að taka ströndina með stæl og "tana" okkur í drals enda er "Farmer tanið" á okkur orðið all hrikalegt. Haus, framhendleggir og lappir fyrir neðan hné hafa náð lit. Annað er HVÍTT og vandamálið versnar með hverjum sólardeginum sem líður.

Kveðjur frá Los Angeles International Airport,
Ragnar

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

glæsilegt með endurskínsmerki á ekki "tanaðann"hluta líkamanns. Þið tínið allavega ekki hvur öðrum á ströndinni.
Góða skemmtun
Stóra systir