Dvölin í Cusco er búinn að vera fín, háloftið er farið að leggjast ágætlega í mann þó að göngutúrinn upp að hostelinu sé enn þá helvíti erfiður enda er þessi brekka vel brött. Þetta er fín æfing fyirr Machu Picchu.
Annars höfum við félagar ekki verið neitt sérstaklega virkir í túristanum hérna, tókum einn dag í að reyna að redda útivistarfatnaði á Doddann þar sem við ætlum rölta Inka trailið sem er 4 daga ganga og endar með því að eitt af 7 undrum veraldar, Machu Picchu er skoðað. Það er regntímabil í Perú núna og því mikilvægt að hafa skítsæmilegar græjur. Þeir sem við höfum hitt síðustu daga og hafa farið þessa göngu hafa flestir lent í rigningu allan tímann.
Doddinn var búinn að fá miklar fregnir að heiman hvað það væri nú allt ódýrt í Cusco og það væri hægt að leigja allt sem hann þyrfti hérna eða kaupa það fyrir klink. Eftir töluvert rölt komumst við að því að ef maður er mjög lítill þá er alla vega hægt að kaupa ýmislegt hér. Það er hins vegar ekki einfalt fyrir slána eins og Dodda. Mest spennandi var að reyna að finna gönguskó númer 47 í Cusco. Fólk á þessu svæði hefur náttúrulega aldrei heyrt um lappir af þessari stærð. Eftir að hafa farið í 10 mismunandi búðir og sölumenn reynt að sannfæra Dodda um að hann væri ekki með svona stórar lappir fundum við eina búð sem vildi meina að hún gæti reddað þessu. Það tæki bara nokkra tíma :). Við kíktum því við seinni partinn og vitir menn. Einhvers staðar höfðu þau grafið upp gönguskó númer 47 úr leðri sem virðast meira að segja get haldið vatni :).
Þá var bara að reyna að finna einangrunarfatnað, regnbuxur og sokka. Úrvalið í Large var ekkert gríðarlega mikið né er fatnaðurinn sérstaklega vandaður hérna. Ef fatnaðurinn er ekki falsaður eða algjörlega lowbudget þá er hann ca. jafn dýr og á Íslandi ef hann er þá til. Ég var alla veginn feginn að hafa dröslast með minn fatnað frá Íslandi því það var fátt í þessum búðum sem mig langaði að eiga. Stærsta seasonið í Inka trail trekkinu er ekki á regntímabilinu og því eru líklega flestir að rölta þetta í stuttbuxum en ekki skotheldum regnfatnaði. Doddinn náði þó að komast yfir það helsta sem hann þarf fyrir ekki allt of mikla peninga og því erum við tilbúnir að massa Inka trailið.
Annars komum við okkur upp smá prúttreynslu af þessum æfingum okkar. Mig vantaði tösku til að geta geymt draslið mitt á hostelinu á meðan við erum í trailinu. Fór inn í eina búð með Doddanum og fann þar tösku sem virtist vera ágæt í þetta. Þegar ég spurði um verðið þá átti gripurinn að kosta 42 dollara. Mér fannst það of mikið og ætlaði því að hætta við að kaupa hana. Lækkaði þá verðið allt í einu um 25% og lét ég því verða af kaupunum. Með þessa reynslu í farteskinu auk þess sem við erum alveg meðvitaðir að við höfum verið að borga allt of mikið fyrir taxa frá flugvöllunum var ég tilbúinn í næsta verðstríð. Í einni útvistarbúiðinni var ákveðið að fjárfesta í Micropur töflum til að sótthreinsa vatn á Inka trailinu. Upphaflega verðið var alveg fáranlegt sem var nefnt og endaði þetta með um 80% lækkun eftir 2 mínútna samningaviðræður :).
Við drengir skelltum okkur út að eta með Íslensku stúlkunum sem gista á hostelinu okkar. Það kom í ljós að þetta eru 20 ára blómarósir að taka þátt í nýasta trendi Íslendinga. Nú er það víst þannig að enginn framhaldskólanemi getur látið það viðgangast að fara ekki í heimsreisu eftir að námi er lokið. Þetta er svona eins og með fótanuddtækin og trambolínin, við verðum bara öll að gera þetta :). Annars var þetta fín kvöldstund. Ég át einn þjóðarrétt Perú búa sem er Guinea Pig (Naggrís samkvæmt Dodda). Maður fékk kvikindið á diski, ekki í heilu lagi heldur bútað niður en þetta var þó heill skrokkur fyrir utan hausin. Það var ekkert annað að gera enn að ráðast á kvikindið með puttunum, ég var ekki lengi að renna honum niður og var hann bara nokkuð ljúffengur. Á eftir tókum við smá rölt á öldurhús Cusco sem voru misspennandi. Fundum þó einn stað sem var stappaður af allra þjóða kvikindum sem voru með það eitt að markmiði að sturta í sig áfengi. Skynsemin réð þó ríkjum í þetta skiptið og við Doddi fórum snemma heim þ.s. við ætluðum ekki að skíta á okkur á Inka trailinu út af þynnku.
Annars er þetta Hostel snilli sem við erum á. Það er mikill hippafílingur yfir þessu öllu og gleði og friður sem ríkir yfir öllu hér. Eigandinn er greinilega fastur í hippatímabilinu og bíður upp á ferðir þar sem hægt að fara og drekka kokteil og San Pedro plöntu sem inniheldur sem sagt mescaline og ná menn víst að bægja öllum vondum tilfinningum í burtu eftir þessa lífreynslu og tengjast ótrúlegum böndum við náttúruna :). Við morgunverðarborðið hafa nokkrir gestir einmitt verið að ræða mismunandi reynslu sína af hinum ýmsu plöntum sem innihalda mescalín og verður bara að viðurkennast að þetta er hálf fyndið að hlusta á þessar umræður hjá þessu liði. Það er greinilegt að þeir sem ferðast um heiminn er langan tíma eru margir hverjir í miklum hippa fíling.
Það kom loksins sól í Cusco síðasta daginn okkar hér, það er búið að vera þokkalegir skúrir reglulega þó að veðrið hafi verið ágætt. Sólin í 3300 metrum er nokkuð sterk og það tók ekki langan tíma að grilla á manni hálsinn og andlitið í þessum hita. Það var fjárfest í derhúfu og sólarvörn makað í smettið til að varna frekari tjóni. Við tókum smá túrisma á þetta kíktum á skrúðgöngu lögreglumanna (sem eru greinilega helvíti margir), kíktum á markað heimamanna sem var mjög áhugaverður, fórum í kirkju o.fl. Svo var bara að moka í sig kolvetnum í kvöldmat, klára að pakka fyrir Inka trailið og reyna að sofna þokkalega snemma því að við verðum sóttir klukkan 05 í fyrramálið af leiðsögumönnunum sem fara með okkur til Machu Picchu.
Sér færlsa um þá ferð því þessi færlsa er orðinn leiðinlega löng :)
laugardagur, 19. janúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Mega ykkar landsmenn á Íslandi búast við enhverjum hippum íklæddum marglituðum teppum, órökuðum og skeggjugum til baka?? Jeg bara spyr ;-)
Þetta er alger snilld hjá ykkur og áfram góða skemmtun...
Kv Magga
Skrifa ummæli