Jæja, þá erum við búnir að vera í Buenos Aires i 5 daga og þetta orðið gott. Kominn tími á að skella sér aftur upp í flugvél og skoða meira af Argentínu :). Hraðferð okkar um heiminn verður að halda áfram!
Annars erum við búnir að hafa það mjög gott hérna. Við færðum okkur á Hostel í Palermo Soho eftir að hafa verið á hóteli í Puerto Mudero í 3 daga. Hostel í 2 daga er 2.000 krónum ódýrara en einn dagur á frekar ódýru hóteli þannig að það munar um það :). Annars var líka fínt að skipta um umhverfi. Palermo er tískuhverfi BA. Hér er allt fullt af flottum fatabúðum, design búðum með smáhluti fyrir heimilið og mikið magn af flottum veitingastöðum. Þó að BA þyki frekar dýr þá erum við Íslendingar náttúrulega vanir slíkri verðlagningu að allt sem við sjáum hérna virkar gefins :).
Við hittum gaur frá New York hérna á hostelinu og spurðum hann ráða um hvert við ættum að fara og eta og skemmta okkur. Eins og allir New York búar var kappinn með þetta allt á hreinu. Með Black Berryinn í annarri og þuldi hann upp nöfn á veitingastöðum og klúbbum sem við þyrftum að tjékka á. Við fórum eftir meðmælum hans og fórum að borða á stað sem heitir Caza Cruz. 2 gylltar hurðir og engir gluggar tóku á móti okkur þegar við mættum á staðinn. Þegar inn var komið tók á móti okkur stór og mjög flottur veitingastaður. Við átum foi gras creme brule, ostrur, frábæra nautasteik, eftirrétt, og Gran Reserva Malbec vín. Allt kostaði þetta blússandi 6.000 krónur á mann sem þykir geðveiki hér í landi :) en myndi ekki duga fyrir súpu og lambi á lélegum veitingastað heima :). Snilldarkvöld og matur.
Við fórum og heimsóttum Igazu Falls á miðvikudaginn. Hugsuninn um að eyða 16 klukkustundum í rútu var ekki að heilla okkur þannig að við flugum bara um morguninn og komum heim aftur um kvöldið. Við skoðuðum fossana frá hinum ýmsu sjónarhornum í alls konar veðrum. Það rigndi eldi og brennisteini og inni á milli skein sólin skært. Allir sem voru að skoða fossana voru mígandi blautir og myndatökur voru nokkud erfiðar við þessar aðstæður en við náðum þó okkar slatta af fossamyndum sem koma inn á næstu dögum.
Annars erum við búnir að labba um alla borgina fram og til baka. Kíktum í gær á kirkjugarðinn þar sem Eva Peron er jarðsett. Gríðarlega myndalegur kirkjugarður fullur af litlum grafhýsum sem eru reist til minningar um ákveðna einstaklinga og fjölskyldur.
Við erum búnir að fá okkar fyrstu lexíu í greiningu á peningum. Við vorum að borða í hádeginu í gær og Doddi ætlaði að borga með 100 pesóa seðli sem hann hafði tekið út í hraðbanka. Þjóninn horfði á seðilinn og brosti. Þetta var víst falsaður seðill. Hann var reyndar alveg merkilega raunverulegur en þegar betur var gáð var watermark myndin ekki raunveruleg og pappírinn greinilega annar. Maður var svo sem búinn að lesa um þetta en eins og alltaf þá reiknaði maður eiginlega ekki að lenda í þessu sjálfur :).
Fljúgum í dag til Cordoba og stefnum á að vera ca. 5 daga þar. Ég er búinn að vera að reyna að skipuleggja dúfuskytterí þar í um 2 daga og það lítur út fyrir að það ætli að lukkast. Það verður spennandi að sjá hvernig upplifun það verður að skjóta dúfur í Argentínu. Þetta þykir vera rjómi dúfuskytterís í heiminum þannig ég er að vona að lenda í alvöru actioni. Svo á eftir að koma í ljós hvort að maður hitti eitthvað :). Á meðan ég verð að saga niður dúfur verður Doddi að mæla götur Cordoba.
Jæja, meiri upplýsingar og myndir þegar við erum komnir til Cordoba. Það er rosalega erfitt að þurfa að lesa fréttir um ofsakulda og heitavatnsskort á Íslandi. Hehehhehehe. Við látum 30 stiga hitann og sólina bara ilja okkur hérna vona að enginn sé búinn að missa neina útlimi í kuldanum :).
Adios,
Ragnar
laugardagur, 2. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
tjaaa... er ekki spurning um að senda nafnlaust á fjölmiðla.... Íslenskur bankastarfsmaður viðriðin peningafölsunarmál í Suður-Ameríku.
Reynið nú að skemmta ykkur vel...kuldin og allt það verður hérna þegar þið komið til baka :)
kv, Lee
Qué bueno qué bueno, heppnir að vera ekki tekknir fyrir penigafals ;-)
Glæsilegt hjá ykkur.
Hasta luego y
adios
Kv
Magga systir í snjó og blíðu í Norge
Skrifa ummæli