fimmtudagur, 20. mars 2008

Goa - Á slóðum morðingja og nauðgara

Eftir skoðunarferð okkar Dodda um margar frægustu byggingar Indlands héldum við suður eftir nánar tiltekið í bæ sem kallast Goa og er sumarparadís þeirra Indverja. Strendur og pálamatré draga túrista hingað sem eru örmagna eftir ferðalög innan Indlands. Veðrið var þó ekki svalt. Um 38-39 gráður en þó smá andvari frá sjónum þannig að í skugga var nokkuð þægilegt að vera. Mér tókst reyndar að ná mér í flensu þannig að ég gerði ekki margt heldur hélt mig á Hostelinu og reyndi að losna við hitann sem var sambærilegur og hitastigið úti. Svitamagnið sem verður til við það að vera með hita í svona miklu hitastigi er töluvert.

Þið kannist kannski við nafnið Goa og heitið á ströndinni Anjuna þar sem Scarlett nokkur, ung bresk stúlka var nýlega myrt eftir að henni hafði verið nauðgað. Málið hefur verið til umfjöllunar mikið í heimspressunni. Í kjölfarið hafa vaknað upp ýmsar spurningar um öryggi túrista á ströndum Goa, eiturlyfjasölu á svæðinu, lögregluna og annað. Það er nefnilega þannig að þetta er ekki fyrsta málið og alls ekki það síðasta. Reyndar var það þannig að á þessum 5 dögum sem við vorum þarna var alla vega ein kona kyrkt á hóteli og annari var nauðgað á föstudagskveldi í grennd við hótelið sitt. Í fyrra létust 61 túristi í Goa. I kid you not. Ég er ekki viss hver talan er í dag en ég held að hún sé kominn í kringum 20.

Þetta eru reyndar ekki allt morð eða nauðganir á konum. Eitthvað er um að túristar látist af ofneyslu eiturlyfja og miðað við umferðina í Indlandi þó hljóta einhverjir að látast í umferðaslysum. Fjölmiðlar hafa farið hamförum hérna í umræðu sinni um þetta mál. Sumum finnst heimspressan ekki vera sanngjörn, aðrir taka þann pólinn í hæðina að nú sé tími kominn til að breyta ásýnd Goa og taka til á ströndunum og losa samfélagið við þessa kvilla "sem eru komnir í ljós" s.s. eiturlyfjavandamálið í Goa sem þeir virðast vera að fatta að sé til staðar. Það gæti reyndar ekki farið fram hjá neinum en það er margt sem menn sjá ekki ef þeir vilja ekki sjá það :).

Ef það er eitthvað sem er búið að bjóða manni jafn og og leigubíl og skellinöðru til leigu þá eru það eiturlyf. Við ströndina standa eiturlyfjasalarnir í röðum tilbúnir að bjóða þér í að reykja, kaupa kók, e eða önnur efni sem þér gæti vantað á meðan þú sólar þig. Á ströndinni sem við erum á (Anjuna) eru það Indverjarnir sem stjórna fíkniefnasölunni. Strandlengjan sjálf geymir líklega einhverjar 20 strendur og eitthvað af þeim eru undir stjórn rússnesskra fíkniefnasala. Við urðum varir við fíkniefnasala eftir klukkutíma, fjölmiðlar og stjórnvöld eru að fatta þetta núna :).

Annars vildi ég ekki vera kvennmaður hérna. Þær fáu götur sem eru upplýstar er mjög illa upplýstar. Manni er nógu illa við það að vera að labba úti hérna á kvöldin og ef ég væri kvennmaður og þó að ég væri í hóp kvennmanna léti ég mér ekki detta það í hug miðað við lýsingar á fjölda nauðgunar og ofbeldismála sem vestrænar konur lenda í hér. Það er nefnilega þannig að hér virðist vera viðhorfið að þetta sé þeim sjálfum að kenna af því að þær séu druslulega til fara. Í Indlandi tíðkast nefnilega ekki að kvenfólk sýni mikið af holdi. Maður spyr sig þá hvort að það sé þá ekki skynsamlegt að vera ekki að auglýsa þennan bæ sem paradís fyrir sólarunnendur. Það er nefnilega þannig að fólk fækkar fötum á sólarströndum :). Umræðan hérna um "réttlæti" nauðgunar nær í raun svo langt að það er rætt um hana í sjónvarpi og fjölmiðlum þó að þeir séu að rembasat við að vera pólitískt réttir. Þó dettur alltaf inn ein og eins setning sem sýnir þetta viðhorf. T.d. er mikið rætt um sönnunarbyrði í máli Scarlettar. Þeim finnst nefnilega ekki alveg sannað að henni hafi verið nauðgað þar sem mögulega hafi hún táldregið þá, og jú hún var náttúrulega svo búinn að drekka og taka eiturlyf. Hehe mjög spes viðhorf.

Annars get ég vottað að það er engin þörf fyrir neinn sem hefur nokkurn tíman verið á alvöru sólarströnd að koma hingað og sóla sig. Það er svona Indverski stílinn á þessu öllu. Strendurnar eru skítugar með drasli út um all, hrörlegum skúrum, pirrandi sölumönnum, beljum og öðru sem á ekki heima á alvöru sólarströnd. Þessi gullmoli sem Anjuna á að vera er nokkurhundruð metra strandlengja sem eftir hádegi verður að 10 m ræfli þegar það fer að flæða að. Strandlengjan og göturnar í kringum hana eru eins og annað í Indlandi. Ófrágengið og rusl út um allt. Á 5 dögum höfum við hvorki sé lögreglubíl né lögreglu á svæðinu en það er þó nóg af eiturlyfjasölum hér.

Það var þó ágætt að taka veikindinn út hér. Kostaði okkur ekkert að gista hérna og maturinn ódýr þannig það var fínt að taka þetta út hér.

Annars erum við komnir til Hong Kong og búnir að vera þar í 3 daga. Frábær borg sem er þægilegt að ferðast um, skoða, versla og eta. Ef þið eigið einhvern tíman leið til Kína þá mæli ég hiklaust með því að taka 4-5 daga hérna.

3 ummæli:

Hadda sagði...

Dísusss það fer nú bara um mann hrollur að lesa þetta!
Gott að þið eruð ekki stelpur/druslur;)
Páskakveðja frá London
Hadda

Ragnar sagði...

Sæll meistari

Við Jóhanna erum búin að vera að lesa bloggið þitt hérna í rigningunni í London.

Þú er orðinn þvílíkur mulningsbloggari, greinilega frábær ferð!

Ef þetta er ekki draumurinn, hvað þá?

Nú er röðin komin að blogginu hans Dodda.

P.s. Það mættu vera fleiri myndir af ykkur köppunum.

Ragnar Gunnlaugsson sagði...

Jú þetta er helvíti frískandi reynsla eins og maður segir :).

Heh já við erum búnir að fá slatta af kvörtunum út af myndaleysi. Við erum bara of latir í að smella mynd af hvor öðrum :).