sunnudagur, 2. mars 2008

Komnir til Tokyo

Kallarnir komu til Tokyo í gær eftir þokkalega langt ferðalag þar sem við töpuðum heilum dag úr lífi okkar eins og lesa má í fyrri færslu. Eftir nokkrar æfingar í lestakerfum borgarinnar og rölt fundum við hótelið okkar góða sem er staðsett nokkuð vel central í hverfi sem kallast Akasaka. Mjög gott hótel á fínu verði með öllu því nauðsynlegasta s.s. tölvustýrt klósett með hitastilli, rassskolara og öðrum útbúnaði sem ekkert klósett getur verið án.

Annars náðum við að toppa allt á fimmutdeginum á Hawaii. Dagsetningar og vikudagar voru farnir að renna saman í hausnum á okkur báðum. Því vorum við búnir að pakka og panta skutlu til að fara með okkur út á flugvöll á föstudagsmorgni frá Hawaii. Það var sem sagt einum degi of snemma þar sem við áttum að fljúga á laugardeginum 1. mars. Kl 23 á fimmtudagskvöldinu kveiknaði þó á nokkrum heilasellum og málið var skoðað betur. Við afpöntuðum því skutlunum um morguninn og græddum því aukadag á Hawaii til að ná okkur í meira Tan og slaka á :).

Reyndar var snillinni ekki lokið á Hawaii. Eins og ég hef ritað um áður þá virðist hostelið okkar vera "inn" hjá "Stjörnuförum" (það er samkynhneigðum karlmönnum). Það eru alla vega 2 af fjórum starfsmönnun hostelsins alveg kengbeygðir og sá þriðji var sterklega grunaður um að hafa þessa tendanca líka. Alla vega þá leggjumst við Doddi til kvílu á fimmtudagskveldinu glaðir vitandi að við eigum eftir einn sólardag á Hawaii. Um nóttina rankar Doddinn við sér. Næmur sem Ninjabardagamaður vaknar Doddinn við hvaða ógn sem er að næturlagi. Í þetta skiptir er að kengbeygður stjörnufari að gægjast inn í svefnplássið hjá Dodda og taka út föngulegann afturendann á honum. Þegar hann sér að Doddinn er vaknaður stingur hann sér snögglega út úr herberginu lúppulegur án þess að segja orð.

Þetta fékk maður svo að frétta um morguninn þegar ég vaknaði. Hvort að sá svarti hafi stundað þetta vitum við ekki en þetta er s.s. skiljanlegt enda of mikil freysting fyrir greyið, sérstaklega eftir að Doddi var búinn að rölta um svæðið olíuborinn og glansandi sem Sólguðinn sjálfur. Alla vega mjög fyndið eftir á þó að Dodda hafi ekki fundist þetta fyndið um morguninn :).

Back to Tokyo. Flugið hingað var nice þrátt fyrir mjög lítil sæti. Við báðum um sæti við neyðarútganginn á okkur þannig að lengdinn slapp. Þó var rétt að við slyppum ofan í sætin á breiddina. Það er alveg ljóst að þykkir Bandaríkjamenn eru ekki að fara að fljúga með þessu flugfélagi. Annars var þessi 8.5 klst. flugferð bara mjög nice, nóg af góðu sjónvarpsefni, mjög góður matur og þjónustann sú besta sem við höfum fengið í flugfélagi hingað til.

Þegar við kappar komum upp á hótel í gær um 5 leytið var ákveðið að leggja sig aðeins eftir langt ferðalag auk þess sem svefninn hafði ekki verið mikill nóttina fyrir flugið enda föstudagskvöld á Hawaii og fólk á hostelinu á leið á djammið, koma af djamminu og svo djamm allt í kringum hostelið. Við vöknuðum sem sagt báðir í nótt um 02 þannig að það var ekki gert neitt í gærkveldi annað en að sofa. Vorum því komnir fram úr fyrir kl. 06 í morgun eftir 13 tíma svefn, átum morgunmat og fórum svo að rannsaka Tokyo. Skemmtilegt er frá því að segja frá því að þegar við opnuðum hurðina þá tók á móti okkur einstaklingur sem var sofandi á gólfinu og herbergislykillinn hans við hliðina á honum. Sá hefur fundið gleðina í gærkveldi það er greinilegt. Bakkus hefur þó eitthvað þvælst fyrir honum þegar hann var að reyna komast inn til sín og því hefur hann ákveðið að best væri að leggja sig bara þarna á gólfinu :).

Við komum um 8 leytið út í Metroinn. Það var mjög áhugaverð reynsla. Á þessum tíma er lestarkefið algjörlega pakkað, lestirnar stútfullar af litla fólkinu og gangarnir enn þá pakkaðari af fólki á hraðferð. Það er eins gott að vera með á hreinu í hvaða átt maður ætlar að fara því fólkstraumurinn er mikill og ef maður hikar eitthvað þá er hætta á að vera keyrður niður.

Við erum búnir að rúlla fram og til baka um borgina í dag, skoða einhverja garða, kynnast Metro kerfinu betur, fá okkur Susí, verlsa (Doddinn búinn að versla nýja linsu á Canon græjuna góðu) og margt fleira. Við eigum hitta félaga Dodda á morgun kl 05.30 á fiskimarkaði sem er mjög frægur hérna. Það er víst mikil upplifun að sjá actionið þegar þeir eru að koma markaðnum í gang. Annars er Tokyo mjög flott borg, ýkt eins og maður vissi en hrein og snyrtileg. Tokyobúar virðast hins vegar hafa mikla sýklafóbíu því að það er slatti af fólki hérna sem gengur með svona andlitsgrímur eins og skurðlæknar. Af hverju veit ég ekki því að loftið hér er mun betra en í flestum stórborgum sem maður hefur verið í.

Jæja, þá er bara að halda áfram að túristast, eta súsí og hanga í metroinu!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tokyo er auðtiva bara snilld! Þá er bara að kíkja í Karaoke með einhverjum Japönum og fara á Strippklúpp í eigu mafíunnar niðri í Roppongi

Nafnlaus sagði...

Stórskemmtileg lesning að venju, keep on going, kv. HÆ.