mánudagur, 10. mars 2008

Indland - land nanbrauðsins og Taj Mahal

Við álfarnir lentum í Delhi þann 6. mars eftir "aðeins" 9.5 tíma flug frá Tokyo. Við komum úr þægilega kaldri Tokyo yfir í brennandi Indland sem er þó enn þolanlegt en það styttist þó óðum í að hitinn verði óbærilegur hér. Það er aðeins 35-39 stiga hiti hér á daginn sem þykir í lagi :). Heimamenn lifa þetta víst af upp í 40-43 en í maí og júní þegar hitinn nálgast 48 gráður þá er víst "off season" hjá þeim :).

Annars var Tokyo frábær. Ég mæli hiklaust með heimsókn þangað þó að það sé hægt að velja betri tímasetningu en við hitastigslega séð. Japaninn er hjálplegur, hreinlátur, tillitssamur við náungann (alla vega í Tokyo) og býr til gott Sushi. Er hægt að biðja um eitthvað betra? Ég ætla ekki að þreyta ykkur með upptalningum á hvað við erum búnir að skoða hér á þessum stutta tíma en við erum búnir að rölta um þó nokkra flotta garða, skoða nokkur musteri, fiskmarkaðinn og einhver söfn. Við náðum þó ekki að fara út á lífið í Roppongi né syngja í Karioke. Ég veit, þetta er lélegt og ég skammast mín en orkan var bara ekki til staðar.

Við náðum að eta slatta af Sushi og toppuðum á síðasta degi þegar við fórum og átum hádegismat á þekktum stað sem er með matseðilinn á frönsku og japönsku, mjög góð hugmynd ef þú vilt sjá til þess að enginn viti hvað hann er að fara að borða. Maturinn mjög góður og staðurinn mjög flottur. Um kveldið og átum 5 rétta veislu teppanyaki style. Kobe kjet var þar á meðal þannig að maður er orðinn official Kobe meat eater ala Japan! Þið sem hafið ekki etið Kobei í Japan, þið eruð bara ekki í sömu deild :).

Það kom enn og aftur í ljós að þessi 300 þúsund manna þjóð okkar er alls staðar og það er ekki hægt að forðast hana. Á leið okkar til að skoða höll einhvers keisarans löbbum við fram hjá hóp af 4 stelpum sem voru að tala saman. Þaulæfð eyru okkar greindu strax að ekki var um japönsku né frönsku að ræða heldur íslensku! Þarna voru á ferð stelpur sem voru að hefja 3 mánaða asíuferð sína og auðvitað rekast þær á okkur. Nú erum við búnir að fara til 7 landa og við erum búnir að hitta Íslendinga fyrir tilviljun 3 sinnum á þessum 2 mánuðum. Crazy!

Back to India. Í leti okkar og tímaþröng keyptum við 6 daga pakkaferð til að skoða svæði sem er skilgreint sem "Gullni þríhyrningurinn" (hljómar kunnulega er það ekki :)). Þegar við lentum á "stórglæsilegri" flugstöðinni í Delhi, tók á móti okkur bílstjóri og fulltrúi ferðaskrifstofunnar og skutla okkur upp á "stórglæsilegt" 4 stjörnu hótelið okkar hér í New Delhi. Hótel í Indlandi eru annáluð fyrir það að standa ekki undir stjörnugjöfinni þegar komið er fram hjá anddyrinu. Þessi tvö 4 stjörnu hótel sem við höfum gist á staðfesta það algjörlega. 3 stjörnuhótelið okkar í Tokyo fengi 8 stjörnur miðað við hreinlætið og aðbúnaðinn í herbergjunum hérna :). Ekki að það skipti máli, bara fyndið að sjá skítugt baðherbergi, fúkkalykt í herbergjum og kokkinn með hvíta drulluskítuga svuntu standandi að steykja ommilettur við morgunverðarhlaðborðið :). Annars er 3 stjörnu hótelið okkar hérna í Jaipur mjög flott þannig að ef þið kíkið til Indlands verið viðbúinn að rýna ekki bara í stjörnurnar :).

við erum búnir að vera hér í 3 daga og búnir að sjá ýmislegt. Indland er land öfganna. Hér má finna margar fegurstu byggingar í heimi, og hér er margt um fallega hluti. Hins vegar má líka finna ótrúlegt magn af skít og rusli í hverfum í mikilli niðurníðslu. Það virðist ekki vera neinn millivegur hér og munurinn á milli fátækra og ríka er líklega eins mikill og hann getur orðið nokkurs staðar í heiminum. Almennt séð virðist viðhald á götum og umhverfi borgara ekki vera í forgangi. Indverjar eru gríðarlega stoltir af borgunum sínum og sögufrægu mynjunum sem þær geyma. Það virðist hins vegar ekki ergja þá neitt að það séu rusl og ruslahrúgur út um allar götur sem vel flestar eru uppgrafnar og hálfkláraðar. Hér eru allir með bros á vör og svífa í gegnum daginn horfandi á ruslið og eru bara sáttir :).

Við skoðuðum Delhi á fyrsta degi. Delhi skiptis í 2 hluta. New Delhi sem er "skipulagði hlutinn" af Delhi, og var að mestu byggð undir stjórn Breta, og svo gamla Delhi þ.s. efnaminna fólkið er ríkjandi og niðurnýðslan algjör. Rafmagnskaplar hanga meðfram húsum í algjöru reiðuleysi, umferðin er eins geðveik og hún getur verið, þó að hún sé reyndar alveg crazy hér í Indlandi almennt. Fyrir utan helstu ríkisbyggingar, moskur og önnur fræg kennileiti þá verður Indland líklega seint sakað um að eiga stórglæsilegar borgir ef við horfum fram hjá sögufrægum byggingum sem voru reistar fyrir mörgum öldum. Við erum búnir að heimsækja Delhi, Agra og Jaipur hér í Norður Indlandi og almennt séð eru þessar borgir í algjörri niðurnýðslu.

Umferðin hérna er algjört ævintýrir. Hér virðast gilda 2 reglur. Það skal fara eftir umferðarljósum þar sem þau eru. Það skal keyra vinstra meginn á akrein. Seinni reglan er þó nokkuð frjálsleg. Góður slatti af flauti, óþolinmæði og hugrekki knúa menn til að fara töluvert mikið yfir á hægri helming þegar þeir þurfa að komast fram hjá umferð sem er hvort sem er ekki að hreyfast í hvoruga áttina. Annars er kannski ekki hægt að tala um helminga þar sem þeir eru ekkert að merkja neinar akreinar. Þetta er bara gata og það á að nota hana :). Það er líka magnað að sjá hvernig þeir nýta faratækinn. Litlu þríhjólin sem eru hönnuð fyrir 3 má oft sjá með 7-8 manns. 2-3 á móturhjóli eru algeng sjón en metið er 4 á sama móturhjóli :).

Við fórum til Agra, heimaborgar Taj Mahal, með lest. Ferðin sjálf var þægileg en útsýnið var magnað. Rykmettað mystrið olli því að maður sá ca. 7-10 metra út úr lestinni. Skyggnið batnaði þó þegar sólinn hækkaði. Það sem var þó magnaðast var að sjá aðbúnað fólks hér í Indlandi. Aðeins 5-10 mín frá lestarstöðinni fóru að glitta í línur af fólki sem sat á hækkjum sér meðfram lestarteinunum með vatnsflösku sér við hlið. Þetta fólk var sem sagt að létta á sér þarna í rólegheitunum við lestarteinana og tilbúið að skola afraksturinn með smá vatni og vinstri handleggnum. Við erum ekki að tala um 1-2 sem voru að létta á sér. Þetta voru tugir manna að taka morgunskituna á fleiri kílómetra flæmi. Mögnuð sýn.

Húsakostur þessa fólks var á alla vega, hrörlegir kofar úr múrsteinum, tjöld, strákofar og annað sem einhvern veginn hangir saman og eru staðsett í nágrenni við lestarteinana. Greinilegt að frárennslikerfi er ekki til staðar og vatnsveitukerfið er greinilega fátæklegt því 50 m. frá þar sem fólk var að tefla við páfann mátti sjá ungann dreng dæla vatni í fötu úr vatnsbrunni.

Við komu okkur til Akra fórum við strax út að skoða frægustu byggingu í heimi Taj Mahal. Í brennandi hitanum röltum við um þessa mögnuðu byggingu ásamt þúsund annarra ferðamanna. Mögnuð sýn og magnað byggingarafrek. Það tók víst 20.000 manns um 20 ár að byggja hana og öll fínustu efni notuð til þess. Munstur sem má sjá í hvítum marmaranum eru öll búinn til úr eðalsteinum sem eru innfelldir í marmarinn. Á þessum tíma var sement ekki í boði þannig að byggingar hér voru reistar með því að nota einhverja sykurblöndu til að halda saman steinunum. Þetta heldur enn í dag þrátt fyrir að jarðskjálftar hafi dunið á svæðinu á þessum nokkuð hundruð árum. Við erum þá búnir að sjá 3 af 7 furðum veraldar :). Það verður þó að segja að túristar eyðileggja eiginlega túrismann sjálfann :). Það er einhver glansi sem fer af því þegar maður er að skoða þessa frægustu staði heimsins og það sést varla í þá fyrir þúsund túrista sem eru á svæðinu í sama hlutverki.

Við eyddum deginum í gær til að komast til Jaipur, dagurinn í dag fór í að skoða fleiri musteri, hallir og aðra áhugaverða staði. Allt magnaðar byggingar en Jaipur sjálf er þó jafn hrörleg og Agra og Delhi. Við fórum upp í eina höllina á baki fíls. Gaman að prófa það þó að dýraverndunarsinnar séu eflaust ekki hrifnir af svona túrisma. Við þurftum að bíða í röð í 30 mínútur til að komast í þennan fílatúr. Á þessum tíma sáum við mátt Indverskra sölumanna sem hafa þó ekki enn náð til okkar. Með því að væla og tuða í sama fólkinu nógu lengi þá virðist fólk brotna á endanum og kaupa eitthvað drasl sem það hefur ekkert að gera við s.s. bol með fíl á, hálsmenni með fíl á eða útskorinn fíl úr við :).

Jæja restin af deginum í dag fer í að komast aftur til Baka til Delhi með lest og á morgun fljúgum við svo til Goa á Suður Indlandi með hinu stórkostlega flugfélagi Kingfisher (sem er bjórframleiðandi by the way).

Ferðakveðjur,
Ragnar

2 ummæli:

Heiðrún sagði...

Vá þessar lýsingar hljóma rosalega vel ... smá öfund hérna megin :-)
Bestu kveðjur,
Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Svo meiriháttar hjá ykkur DRENGIR

Synd að íbúðin í Thailandi er ekki tilbúinn þegar þið eruð þar.

Kv
Magga systir