fimmtudagur, 28. febrúar 2008

Aloha frá Hawaii

Við drengir erum búnir að vera í viku hérna á Hawaii í mikilli afslöppun á eyju sem heitir Ohahu og er ein af 2 stærstu eyjunum í Hawaii eyjaklasanum. Farmer Tanið hefur eitthvað minnkað þó ekki mikið þrátt fyrir mikla veðurblíður hérna. Við höfum þó þurft að þola 2 daga þar sem það hefur verið skýjað annars er hér yndislega passlega heitt. 20-25 stiga hiti og sól og passlega rakt. Svo sweeeeeeeeeeeeeeeet.

Við gistum í 6 manna herbergi á hosteli sem heitir Seaside Hawaii Hostel. Fínasta hostel og vikan hér kostar okkur minna en nótt á hóteli á Hawaii. Það virðist vera dálítið gay stemming hérna í grennd við og á þessu Hosteli og ég er alveg sannfærður um að flestir telji að við Doddi séum par enda helvíti huggulegir saman :). Einn afgreiðslumaðurinn hérna er eins öfugur og þeir verða og eitt helsta áhugamál hans er að blikka okkur Dodda. Ég held þó að Doddi hafi unnið vinsældakosninguna þegar hann var á röltinu hérna á svæðinu olíuborinn og glansandi eins og sólguðinn sjálfur.

Við tókum einn dag í að kíkja á Pearl Harbor. Mjög áhugaverð ferð þ.s. við kíktum ofan í sögufrægan kafbát, USS Bowfish, skoðuðum eitt af frægari hérskipum þeirra Bandaríkjamann "USS Missouri", flugvélasafn og safn um seinni heimstyrjöldina og árásina á Pearl Harbor. Þá kíktum við líka inni í Honolulu sem virðist vera miðstöð viðskipta hérna á eyjunni með skýjakljúfum og öðru tilheyrandi. Stutt ferð var tekinn í kínahverfið hér á Waikiki sem er ca. 2 götur :) og gerðar bragðprófanir á Víetnömskum mat. Very good!

Við lögðum líka í mikla strætóferð á norðurhluta eyjarinnar til að kíkja á alvöru öldur og "surfera". Eftir 2 tíma strætóferð komumst við loksins á áfangastað sem kallast "Pipeline". Þar mátti sjá haug af snarrugluðu liði surfa í öldum sem voru víst í kringum 20 fet á hæð. Þetta er eitthvað sem virkaði ekki neitt sérstaklega skynsamlegt nema að maður sér frábær sundmaður því mannskapurinn var töluvert langt úti og krafturinn í öldunum og útsogið mjög mikið. Á meðan við vorum þarna þá kom einmitt eitt brettið á land án eigandans. Mannskapurinn á ströndinni var s.s. ekki að stressa sig yfir því. 15 mínútum seinna fór eigandinn að nálgast ströndina eins og korktappi þar sem hann kastaðist fram og til baka í öldunum en silaðist þó hægt og rólega nær landi. Greinilega vanur maður á ferð. Ég held að flestir sem ég þekki hefðu verið drukknaðir í þessu ölduróti. Annars eru þeir líka með svona fínan minnisvarða um þá sem hafa dáið í Pipelininu ofan við ströndina þannig að menn gleymast ekki þó að hafið gleypi þá :).

Waikiki heitir bærinn sem við erum í og er aðal túrista staðurinn hérna. Hér er allt morandi í Japönum hvert sem maður lítur og meira að segja sumar búðir og veitingastaðir sem eru með auglýsingar á Japönsku þannig að það er greinilegt að þetta er staðurinn til að fara í frí á ef maður er frá Japan. Annars er Hawaii fínn túrista staður. Nóg af ströndum hérna og nóg að gera, snorkla, kayakar, labba, versla, eta, eta meira o.s.frv. Ef maður vill hins vegar sjá strákofa og konur með blóm í hári og stunda húladansa þá eru litlu eyjurnar líklega málið. Við erum alla vega búnir að hafa það mjög fínt hérna og erum tilbúnir að leggja í næsta 10 tíma flug sem verður klukkan 8 í fyrramálið.

Við höldum sem sagt til Tokyo í fyrramálið. Leggjum af stað á laugardegi og komum þangað á sunnudegi. Jebb, við töpum sem sagt einum degi af lífi okkar við þetta ferðalag frá Hawaii til Tokyo þar sem við förum frá -10 GMT time zonei sem við erum á hér í Hawai fram í +9GMT time zone í Tokyo. Við verðum 4 daga í Tokyo og svo er það Indland. Við vorum einmitt að panta okkur einhverja 5 daga pakkaferð í Indlandi. Verðum þar með okkar private bílstjóra sem mun rúlla með okkur á milli túrista staða þannig að við ættum að fá gott overview á fyrstu 5 dögunum. Þetta verður spennandi, loksins alvöru menningarsjokk framundan :).

2 ummæli:

Hulda sagði...

ok þú ert orðin svo mikill bloggari að ég fæ eiginlega kjánahroll..

Hulda Bartendergirl :)

Nafnlaus sagði...

Gott hjá ykkur elskurnar, passið bara að það verði ekki hin stóra afbríðisemi frá öðrum velsmurtum pörum á Haway og annarstaðar.
Flott par :-)

Magga systir