Jæja þá er dvöl okkar í Kína lokið og erum við nú komnir til Tælands nánar tiltekið Bangkok. Maður er búinn að vera latur í blogginu og myndainnsetningu sem ég bæti hér með úr. Kína lagðist vel í mig. Við vorum 3 daga í Hong Kong eins og ég hafði bloggað stuttlega um og erum svo búnir að vera 5 daga í Peking.
Á leið okkar um heiminn síast inn einn og einn praktískur hlutur í hausinn á okkur þó að það gerist ekkert sérstaklega hratt. Þessi lexía er í boði hússins! Mundu að taka alltaf með símanúmer á hótelinu/hostelinu sem þú ætlar að fara á. Ef viðkomandi land notar ritmál sem er okkur framandi þá er mjög skynsamlegt að prenta út addressuna á viðkomandi ritmáli ef það er í boði.
Það segir sig svo sem sjálft að leigubílstjórar í borgum eins og Peking vita náttúrulega ekki hvar helmingurinn af götum og hverfum er og því er nauðsynlegt hafa símanúmer hótelsins með. Ég hafði náttúrulega skrifað niður heimilisfang hostelsins á ensku en það hjálpar nákvæmlega ekki neitt þegar 95% bílstjóranna tala bara kínversku :). Anyway, eftir smá brölt við að komast á hostelið frá flugvellinum var hringt í þá sem voru hugsanlega við tölvu á Íslandi. Dabbi hjá D3 kom okkur til bjargar og fann símarnúmerið á hostelinu þannig að við komumst loksins á leiðarenda eftir að starfsmaður hostelsins hafði lóðsað vesalings leigubílstjóranum á réttann stað.
Hér er töluð meiri enska en ég hafði gert ráð fyrir þó að hún sé æði mismunandi af gæðum og því mjög algengt að einhver misskilningur komi upp, þó að báðir aðilar hafi verið sannfærðir um að skilaboðinn hefðu komist áleiðis :). Kínverjar hafa þó greinilega mikla trú á mér því að ég hef lent töluvert í því að eiga "einhliða" samræður á kínversku við aðila sem hafa verið sannfærðir um að ég væri ekki í neinum vandræðum með málið þeirra :). Asía er þó þægilegri að því leiti en Suður Ameríka að þeir sem eru að selja þjónustu hér reyna þó að hafa matseðla með enskum lýsingum og myndum sem hjálpa oft mikið :).
Þrátt fyrir að það er líklega gríðarlegur fjöldi af útlendingum hérna þá hverfa þeir í fjöldann af Kínverjum og maður verður einhvern veginn ekki mikið var við þá. Við erum furðulega fólkið á svæðinu og höfum meðal annars lent í því að fólk vilji taka myndir af okkur.
Sölumenn á mörkuðum eru búnir að mastera hvernig á að ná athygli kúnnans og selja honum eitthvað drasl sem honum vantar ekki. "Hello" með mikilli áherslu (mætti kalla það að öskra) er inngangspunkturinn til að ná athygli. Einu til tveimur orðum er svo hent inn á eftir til að lýsa vörunni og lenda sölunni. "Hello, water buy", "Hello, you, stamp buy". Þrátt fyrir miklar freistingar þá stóðst maður öll gylliboð um að kaupa stimpla, stuttermaboli, derhúfur og svo silljón mismunandi mynjagripi um Bejing 2008 ólympíuleikana sem eru að fara að bresta á.
"Hostelið" okkar svokallaða var flottara en 4 stjörnu hótel í Indlandi og mun stærra en 8 fermetra holan sem við gistum í Hong Kong. Það var gott að fá að sofa í hreinum hvítum rúmfötum til tilbreytingar. Enn og aftur sannast að það er ekkert samræmi á milli verðs og gæða. 1.000 krónur á dag á mann voru að skila okkur meiri gæðum en t.d. 100 punda hótelið í London og allt sem var í boði í Indlandi :).
Þrátt fyrir að vera komnir með netta ferðþreytu og vera komnir með ákveðna mynjaeitrun þá náðum við að vera nokkuð virkir í Hong Kong í að skoða bygginar, musteri og annað sem er nauðsynlegt að skoða sem túristi. Ég verð þó að viðurkenna að eftir 3 mánuði á ferð þar sem við erum búnir að skoða slatta af höllum, kirkjum, musterum, görðum og öðru sem er nauðsynlegt að skoða þá fer þetta að renna saman í eina steypu og maður fer að hugsa. "Já enn ein höllin, þessi er líka symmetrísk, með mörgum minni höllum inni í sem líta allar eins út" :). Ekki það að ég sé að kvarta, það er gríðarlega ljúft að vera hérna úti í hita, upplifa nýja hluti og ekki þurfa að taka þátt í köldum vetri á Íslandi veður- og efnahagslega séð :).
Torg hins himneska friðar, Forbidden City og Temple of Heaven eru meðal athyglisverðra staða sem við höfum skoðað hér í Peking. Þó ber Kínamúrinn sjálfur algjörlega af enda eitt af furðum veraldar og ber þann titil með réttu. Það er hægt að skoða múrinn á nokkrum stöðum og við reyndum að fara á stað þ.s. "færri" túristar voru. Við sluppum þokkalega við traffík þ.s. við vorum í fyrra fallinu. Það er fátt hægt að segja um vegginn annað en að þetta er stórbrotið mannvirki í mögnuðu landslagi. 3 tíma göngutúr um vegginn í bjartviðri var hressandi og gaf af sér töluvert magn af myndum. Þó er með vegginn eins og margt annað sem maður hefur séð í þessari ferð að myndir ná sjaldan að lýsa mikilfengleikanum og andrúmsloftinu sem er á þessum sögufrægu stöðum. Skíðalyftur til að auðvelda fólki að komast upp hann og rennibraut til að komast niður taka þó óneitanlega smá glans af þessu en feita og lata fólkið á víst líka rétt á að skoða svona minjar þannig að þetta er kannski í lagi :).
Peking er orðinn mikil stórborg þar sem vestræn áhrif í formi risahótela og verslunargatna blandast við gamla tímann. Borgin sjálf er nokkuð snyrtileg og Kínverjar almennt séð frekar almennilegir í samskiptum. Ég er þó ekki alveg viss um hvernig almenningssamgöngur eiga eftir að ganga upp þegar allir túristarnir bætast við út af Ólympíuleikunum. Í dag eru allir strætóar og neðanjarðarlestir algjörlega pakkaðar og í raun fleiri að nota subwayið en það ber. Við fórum nokkru sinnum í subwayið og það var eiginlega bara fyndið þ.s. að lestin fyllist og svo bætast við ca. 10-15% af fólki í viðbót með því að troða sér inn og bara pakka sér betur saman.
Frá Peking fórum við til Tælands þar sem við stoppuðum í Bangkok áður en við höldum til Phuket (á morgun). Bangkok er s.s. ekki jafn slæm og maður hafði heyrt. Menningarsjokkið hjá okkur er líklega orðið minna heldur en þegar fólk kemur hingað frá sínu heimalandi þar sem við erum búnir að vera í hinum ýmsu stórborgum sem eru margar hverjar ca. jafn sveittar og Bangkok. Stór, menguð stórborg er s.s. ekki neitt sem má ekki finna annars staðar í heiminum. Hér er þó ágætt að vera, gott að borða og ýmislegt að skoða ef manni vantar að skoða musteri og hallir, kínahverfi og garðar o.s.frv. :). Tælendingar eru greinilega mjög glysgjarnir. Höllin og musterinn er gjörsamlega pökkuð af gulli og glingri sem er hlaðið svo þétt niður að myndataka er nánast ómöguleg. Það er mjög gaman og krefjandi að hlusta á enskuna þeirra þar sem það er oft eins og þeir séu að syngja þannig að það tekur mann smá tíma að fatta hvort að það sé verið að tala ensku eða tælensku.
Við förum á morgun til Phuket þar sem strandmenning Tælands verður rannsökuð. Ég stefni á að skoða ekki eina einustu höll né musteri í næstu viku heldur vera í menningarafeitrun á ströndinni :).
Nýjar myndir komnar inn á flickr. Setti inn myndir frá Hong Kong, Peking og Bangkok. Það eru ekki margar myndir af okkur Dodda. Við erum bara of latir við myndatökur af hvor öðrum.
p.s. lét snoða mig í dag í Bangkok þannig að maður er orðinn eins og einn gangandi risaböllur :)
Over and out frá Bangkok
sunnudagur, 30. mars 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Flott hjá ykkur Ragnar, Bloggið er betra en allir sölu bækklingar.
Svaka gaman að fylgjast með ykkur dúllunum :-)
Kveðja frá Vestby
Helvíti ertu orðinn vígalegur svona skölóttur gamli minn.. . . Hvernig ertu að fíla körfuboltalookið ?
BJ
Hehe Kiwiið er hættulega þægilegt. Það er spurning hvort að maður fái sér hár aftur :).
Annars veit ég ekki alveg hvernig maður á eftir að looka þegar hárið fer að vaxa meira. Maður verður eflaust eins og ígulker.
kv,
Raggi
Býð spennt eftir næstu ferðafærslu ;)
Kv. Védís
Skrifa ummæli