Phuket
Við félagarnir lentum á Phuket fyrir rúmri viku. Lífið er búið að vera ljúft hérna. 30 stiga hiti, sól og passlegur andvari frá hafinu til að kæla mann niður á meðan maður sleikir sólina við sundlaugabakkann eða niður við sjó. Hér eru engar kirkjur, hallir né template þannig að það má segja að batteríinn séu að verða fullendurhlaðinn aftur.
Reyndar er ég nokkuð glaður yfir því að vera á lífi. Frá flugvellinum á Phuket hingað niður til Patong er um 40 mín keyrsla. Við tókum minibus frá flugvellinum og voru 7 aðrir með okkur í honum. Leigubíllinn lagði af stað frá flugvellinum og eftir ca. 200 m. rennur bílinn rólega yfir á öfugan vegarhelming á sama tíma og bíll nálgast úr gagnstæðri átt. Bílstjórinn kippir bílnum yfir á sinn vegahelming og eintóm gleði. S.s. ekkert merkilegt enda við búnir að vera með mörgum lélegum bílstjórum í þessari ferð. Eftir ca. 5 mín var þó orðið ljóst að bílstjórinn var hins vegar ekki bara lélegur bílstjóri heldur var eitthvað meira í gangi. Bílinn rásaði á milli hægri og vinstri helminga vegarins og oft rétt út af veginum sitthvoru meginn áður en kappinn skellti honum aftur inn á veginn. Öryggisbeltin (sem betur fer voru í þessum leigubíl) voru sett á snögglega. Kallinn hélt áfram að keyra á mjög skrautlegann hátt og var nokkrum sinnum nálægt því að keyra niður fólk á skellinöðru og nokkrum sinnum við það að smella framan á bíl úr gagnstæðri átt. Ég naut þess heiðurs að geta horft í augun á honum í baksýnispeglinum þannig að ég sá þegar hann var að berjast við að halda augunum opnum. Eitt skiptið missti ég mig alveg þegar hann lokaði augunum og var á leiðinni framan á bíl. Ég öskraði á kappann og sagði honum að halda sér vakandi meðan hann væri að keyra.
Sem betur fer þá hafði snillingurinn ákveðið að stoppa á túristaferðaskrifstofu með okkur á leiðinni til að reyna að fá smá aukaaur fyrir að koma með túrista sem væri hægt að troða ferðum upp á. Hópurinnn var feginn þegar kallinn stoppaði. Þegar sölumennirnir tóku á móti okkur sögðum við að það væri ekki sénse að við myndum fara með þessum bílstjóra af stað aftur. Hann væri líklega fullur eða á lyfjum. Eftir töluvert tuð fóru þær að skoða málið enda hafði Doddi séð kallinn smella í sig einum sopa úr whiskyfleig á meðan við vorum inni að tuða. Þegar þær fara út að spjalla við karlinn þá dettur hann út úr bílnum. Hann var þá svo blindfullur að hann gat ekki staðið í lappirnar. Hann var kominn langleiðina með þennan whiskypela og eflaust búinn að vera fullur alla helgina. Frískandi!
Við fengum sem betur fer nýan bílstjóra og komumst lifandi á hótelið. Það þykir víst ekki tiltökumál að keyra fullur hérna í Tælandi. Kerlingarnar á ferðaskrifstofunni brostu bara eins og mongólítar og þessi var eflaust kominn í túristakeyrsluna á morgun þegar það er búið að renna aðeins af honum :).
Annars erum við búnir að vera mjög rólegir hérna á Phuket eins og planið var. Við ætluðum upphaflega bara að vera viku hérna en framlengdum svo um eina viku þar sem þetta var svo nice. Við erum búnir að fara í eina skipulagða túristaferð þar sem það var siglt á milli nærliggjandi eyja og þær skoðaðar. Farið er með hraðbát sem tekur um 20-30 farþega. Á hverri eyju / strönd eru síðan um 20-30 bátar að lenda þannig að maður upplifir ekki beint friðsælar óspjallaðar strandperlur eins og ferðirnar eru seldar sem. Þetta var samt skemmtilegur dagsrúntur, smá snorkl, sáum apa, frískandi ferðalag á hraðbátnum og sólin sleikt. Við skoðuðum hina margfrægu strönd sem partur af myndinni Beach var tekinn á. Það sást aðeins í ströndina fyrir hinum 600 túristunum sem voru á þessum 150 metrum :). En aðkoman var flott hehe.
Maður er búinn að vera að vinna í litnum aðeins og það er loksins að koma smá brunka á skrokkinn sjálfan. Á kvöldin hef ég skellt mér niður á strönd og tekið smá skokk á þetta. Rosalega þægilegt að hlaupa í þéttum sandinum þegar sólin er sest og vindurinn nær að kæla mann niður. Reyndar er ekkert eðlilegt hvað ég svitna. Það er alveg ljóst að ég myndi ekki meika að hlaupa maraþon við þessar aðstæður nema að vera með vökva í æð :). Maður verður þó tilbúinn í heilt maraþon í kuldanum heima í haust :).
Á kveldin röltir maður út, etur tælenskan eðalmat og hefur rölt á eina af fjölmörgum knæpum sem má finna hérna og hægt er að fá kaldan Chang bjór (6.4%)til að kæla sig niður með. Við erum búnir að fara á nokkra staði með lifandi tónlist þ.s. við höfum meðal annars fengið að upplifa gömlu góðu tímana með AC/DC, Deep Purple og Metallica og annað gott rokk sem er flutt af Tælenskum coverböndum. Nokkuð skemmtileg upplifun að sjá og reyndar sum þessi coverbönd mjög góð. Hér á Patong er ein gata sem er Babylon þeirra Tælendinga og jafn auðvelt er að fá sér konu og bjór. Það er reyndar dálítið fyndið að rölta um þessa götu og horfa á fjölskyldufólk rölta með börnin sín á milli kynskiptinga, gleðikvenna og sölumanna sem eru að reyna að koma þér inn á "Ping Pong" show :).
Annars eru nokkrir dagar eftir hérna á Phuket til að slaka á, láta nudda sig, sóla sig og gera eitthvað skemmtilegt. Á sunnudaginn mun ég halda til Laos einn míns liðs á meðan Doddi ætlar að halda áfram að njóta alls þess sem hið frábæra strandlíf Tælands hefur upp á að bjóða, þar á meðal Full Moon festivalsins sem verður haldið á Kha Pha Ngan þann 20 apríl.
Þetta er reyndar ekki besti tími ársins til að fara til Laos eða Kambodíu þ.s. Apríl er "heiti" þurri mánuðirinn á þessu svæði og hitastag fer upp í allt að 40 gráður. Mig langar hins vegar að ná að skoða Laos og Kambódíu víst að maður er hérna í heimsálfunni þannig að ég læt mig hafa það. Ef að tíminn leyfir þá reyni ég líklega að detta 2-3 daga til Saigon, Víetnam. Það fer bara eftir því hvernig gengur. Mér skilst að það geti tekið nokkurn tíma að ferðast á milli staða í þessum löndum.
Aðskilnaður okkar Dodda er ekki af illu sprottinn. Reyndar er alveg merkilegt að við séum ekki búnir að drepa hvorn annan eftir að hafa verið nánast saman 24 tíma á dag í 3 mánuði. Reyndar höfum við ekki enn þá náð að rífast sem eflaust flestar stelpur væru búnar að ná að gera á þessum tíma. Ég held að því megi þakka að Doddi sé líklega einn sá afslappaðist náungi sem hægt er að hitta. Ég hef í raun aðeins einu sinni á ævi minni séð Dodda reiðann og það var í þessari ferð þegar einhver gæi í Hong Kong (reyndar einn af mörgum) var að reyna að höstla okkur og fara með okkur á eitthvað Hostel sem við vorum ekki búnir að bóka. Þá vorum við nýbúnir að láta svindla á okkur í leigubíl og Doddanum var algjörlega nóg boðið. Hann gelti illilega að gaurnum og setti upp "reiðasvipinn" sem var nóg til að láta gaurinn átta sig á því að það væri ekki að fara að ganga upp að höstla þennan gæja :). Einstakt móment sem ég mun aldrei gleyma. Ég hefði eiginlega þurft að ná þessu á video.
Látið ykkur ekki verða kalt elskurnar :)
kv,
Ragnar
miðvikudagur, 9. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já sæll gamli.. Reyndu nú að fara varlega & ekki láta þessa dverghottentotta ræna þig &/eða drepa.
Annars sást smá til sólar hér áðan. Í fyrradag er ég var rétt nýnýbúinn að þvo&bóna Benzann minn fór að snjóa. Í gær varð maður svo að hrasa sér ekki í hálkunni.
Það ætti að banna fólki að búa á þessu fjendens skeri...
Farðu varlega, kv BJ
Skrifa ummæli