Þá er maður búinn að vera í 3 daga hér í Siam Reap. Ég er búinn að hafa það nokkuð gott hérna þar sem ég hef verið með Tuk Tuk ökumann alla dagana sem hefur keyrt um með mig fyrri part dags og svo hef ég notað seinni partinum í að slaka á í skjóli loftkælinga sem veitingastaðirnir og hótelherbergið bjóða upp á. Eftir kl 13-14 þá er hitinn hérna bara orðinn of mikill til að gera eitthvað af viti. Því hef ég verið að ræsa snemma, kominn út að túristast kl 07.30 á morgnana og svo er það siesta og tjill seinni partinn og um kvöldið.
Flestir túristar sem koma hingað eru að koma til að skoða musterinn í Angkor. Það er mikill fjöldi af musterum sem er hægt að skoða hér á svæðinu og það er víst hægt að eyða allt að viku í að keyra á milli mustera og pæla í þeim. Þau allra helstu má sjá á 1 degi og á 2 dögum er hægt að fara aðeins lengra í burtu til að skoða fleiri musteri. Þessi musteri eru nokkuð mögnuð sjón og það er ljóst að í denn hefur verið nokkuð magnað að nálgast þau þar sem hin ýmsu líkneski af fílum, ljónum og öðrum fígúrum prýða innganga og umhverfið í grend við þau. Veggir eru útgrafnir og styttur af búdda og Shiva má finna út um allt. Reyndar hefur arðrán verið stundað töluvert á þessum stöðum og því er töluvert af styttum sem eru hauslausar :). Það virðist vera mjög vinsælt að stela hausnum af Búdda og selja hann til safnara miðað við fjölda hauslausra búddastyttna sem ég hef rekist á. Áhugamenn um bíómyndir kannast kannski við eitt musterið úr einni Tomb Raider myndinni.
Það er svo sem fátt um þetta segja nema að musterin eru vel þess virði að taka 1-2 daga í að skoða þau. Myndirnar sem ég náði að taka ná ekki alveg að koma til skila þessum mikilfengleika, en persónulega þá fannst mér þau alls ekki síðri en margt af því sem maður var að skoða í Indlandi þó að byggingarstíllinn og efnið sem er notað hér sé allt öðruvísi. Það er alveg ljóst að Khmerarnir til forna höfðu "klassa". Lítil Canon digital Ixus án víðlinsu og allt of mikilli birtu á samt alltaf erfitt með að ná momentinu.
Í dag fór ég svo í siglingu um svæði sem er kallað "The floating village". Það er sem sagt risastórt vatn, um 35km x 125km stærð skilst mér, sem á milli 2.000 - 3.000 manns lifa á. Ekki við vatnið heldur á því! Einhverjum hefur sem sagt dottið í hug að búa til fljótandi hús sem eru í raun venjuleg hús (ef það er hægt að tala um hús í þessum löndum, kofar eru kannski nær lagi), sett kjöl undir þau og svo látið þau fljóta á vatninu og mynda þannig byggð. Þarna má finna íbúðahúsnæði, búð, kirkju, skóla, íþróttavöll og allt annað sem má finna í venjulegum hverfum. Fólk er með hunda og húsdýr, veiðir sér fisk til matar og selur fiskmeti á markaðinn til að ná í smá aur fyrir öðrum nauðsynjum. Þar sem vatnshæð er mjög breytileg eftir því hvort það er regntímabil eða þurrkatímbil, eins og er núna, þá er byggðin ekki alltaf á sama stað. Þegar regntímabilið hefst færa íbúar sig nær fjöllunum en eru frekar neðarlega núna.
Engin spurning um að 3 daga stopp í Siam Reap er góð hugmynd ef fólk ætlar að koma til Kambódíu. Flestir túristarnir eru á svæði sem kallast gamli bærinn. Ég veit reyndar ekki hvað menn voru að tala um að Kambódía væri ódýrari en Laos. Ég hef ekki orðið var við það, matur og gisting kostar svipað hérna. Það er kannski meira úrval ef menn eru að leita af gistinu á undir 5 dollurum en flest gistiheimili sem eru þokkaleg eru á 10-20 dollara hérna með loftkælingu. Ég hef samt líklega aldrei sagt jafn oft nei við boði um að fá far með tuktuk eða mototaxi. Svæðið sem maður er að rölta á er svo lítið að það tekur því ekki að vera að keyra þetta en samt eru ca. 100 náungar úti á götu að reyna að sannfæra mann um að maður eigi ekki að vera labba 100-300 m:).
Á morgun fer ég svo til Víetnam. Sem betur fer fór ég eitthvað að glugga betur í leyfisblaðið sem ég var búinn að fá til að komast þangað inn. Nafnið og passportið númerið var rétt en ég var allt í einu orðinn frá Þýskalandi. Ég náði að láta breyta þessu þannig að ég ætti að komast áfallalaust inn til Víetnam. Þá er ekki eftir nema 5 dagar eftir af þessu ferðalagi og ískaldur verðbólginn raunveruleikinn framundann.
kv,
Ragnar
mánudagur, 28. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Skilaboðin frá Vestby eru einföld, haltu þér heilum og komdu heill heim.
Kveðja
Magga systir
Velkominn heim Raggi! Hlakka til að heyra ferðasöguna "live".
Védís
Skrifa ummæli